Ánægður með fullkomna fyrirliðann en segir hann þurfa að treysta samherjunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2025 10:32 Bruno Fernandes fékk að eiga boltann eftir leik Manchester United og Real Sociedad enda skoraði hann þrennu. ap/Dave Thompson Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, hrósaði fyrirliða liðsins, Bruno Fernandes, í hástert eftir að hann skoraði þrennu í 4-1 sigri á Real Sociedad í gær. Hann segir þó að Fernandes hafi einn galla í leik sínum.
United er komið áfram í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir sigurinn á Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad í gær. Illa hefur gengið hjá United heima fyrir en liðið er ósigrað í Evrópudeildinni á tímabilinu. Fernandes skoraði þrennu í leiknum á Old Trafford í gær og Portúgalinn er markahæsti leikmaður United á tímabilinu með fimmtán mörk. Amorim er að vonum sáttur með landa sinn. „Þegar við þurfum á honum að halda er hann alltaf til staðar. Hann getur fært boltann fram. Hann getur skorað mörk. Hann er fullkominn fyrirliði fyrir okkar lið og við þurfum hann til að vinna titla,“ sagði Amorim. Hann segir þó einn ljóð á ráði Fernandes. „Við vitum að stundum er hann pirraður. Við vitum að hann þráir svo mikið að vinna og þegar hlutirnir ganga ekki vel skiptir hann um stöðu og fer á eftir boltanum. Stundum verður hann að treysta samherjunum,“ sagði Amorim. United mætir nýliðum Leicester City í ensku úrvalsdeildinni á sunnudagskvöldið. Rauðu djöflarnir eru í 14. sæti deildarinnar.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Fleiri fréttir Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Sjá meira