„Þetta er veikara lið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. mars 2025 11:01 KA byrjaði síðasta tímabil mjög illa en fór síðan á mikið flug og varð bikarmeistari. Liðið endaði svo í 7. sæti Bestu deildarinnar, annað árið í röð. vísir/diego Albert Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, er ekki bjartsýnn fyrir hönd KA og segir að bikarmeistararnir hafi ekki styrkt sig nógu mikið í vetur.
KA er spáð 9. sæti Bestu deildar karla í spá íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2. KA-menn enduðu í 7. sæti 2023 og 2024 og urðu bikarmeistarar í fyrra, í fyrsta sinn í sögu félagsins. „Þetta er veikara lið. Þeir missa Svein Margeir [Hauksson], Daníel Hafsteinsson og Elfar [Árni Aðalsteinsson] er farinn, [Harley] Willard farinn. Það eru stórir póstar farnir úr KA-liðinu og lykilmenn eru orðnir árinu eldri. Rodri er 36 ára, Hallgrímur Mar [Steingrímsson] er 35 ára þannig að þeir eru að mínu mati veikari í ár,“ sagði Albert. Hann segir ástæðu til að hafa áhyggjur af KA í sumar. „Klárlega. Við sjáum bara tímabilið 2022 þar sem liðið endaði í 2. sæti, 3. sæti fyrir skiptingu með 43 stig eftir 22 leiki. Þeir fylgja því eftir með 29 stigum og svo 27 stigum í fyrra. Þeir eru búnir að vera að fara svolítið niður og mér finnst hópurinn í ár veikari en þessi tímabil sem ég er að þylja upp,“ sagði Albert. Klippa: 9. sæti KA „Vissulega er gott að fá Jóan Símun [Edmundsen] aftur sem ætti að vera í betra standi heldur en þegar hann kom síðast. Viðar Örn [Kjartansson] þarf að byrja mótið eins og hann endaði það síðast en það þarf miklu meiri breidd þarna. Þetta er að mínu mati veikara lið og undirbúningstímabilið hefur líka verið slappt.“ KA tekur á móti KR í fyrsta leik sínum í Bestu deildinni sunnudaginn 6. apríl.
Besta deild karla KA Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Sjá meira