Sonurinn opnar sig um mál foreldranna Jón Þór Stefánsson skrifar 23. mars 2025 12:49 Ásthildur Lóa. Vísir/vilhelm Sonur Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra, segist stoltur af því hvernig móðir hans hefur tekist á við málið sem hefur orðið til þess að hún sagði af sér. Móðir hans hafi verið máluð upp sem skrímsli.
Þór Símon Hafþórsson er blóðsonur Ásthildar og Eiríks Ásmundssonar, en hann fæddist eftir að foreldrar hans kynntust í trúarhópnum Trú og líf, en þá var Áshildur fullorðin en Eiríkur enn á táningsaldri. Þór tjáir sig um málið í Facebook-færslu. Þar kemur hann móður sinni til varnar, gagnrýnir umfjöllun fjölmiðla og segir ásakanir um tálmun hlægilegar. Ásthildur ofurhetja í hans augum „Ég er ótrúlega stoltur af því hvernig mamma hefur tekist á við þessar aðstæður, eins og ég hef alltaf verið stoltur af henni. Hvernig hún barðist með kjafti og klóm fyrir mig og mína vellíðan þegar ég lenti í einelti í grunnskóla. Hvernig hún barðist fyrir húsinu okkar og aleigu eftir hrun gegn ofurefli og gafst aldrei upp. Hvernig hún hlífði mér og bróðir mínum fyrir öllu gríðarlegu stressinu sem fylgdi á þeim tíma. Hvernig sú barátta leiddi hana í að berjast fyrir aðra sem höfðu lent í sömu klóm og hún í gegnum Hagsmunasamtök heimilanna og að lokum hvernig sú barátta leiddi hana á þing og að lokum í ráðherrastól fjórum árum síðar. Hún hefur alltaf verið frábær mamma, staðið sig mjög vel sem þingmaður og síðan ráðherra þótt í því embætti hafi hún fengið alltof stuttan tíma til að sanna sig,“ skrifar Þór Símon. Hann segist jafnframt ákaflega stoltur af því hvernig móðir hans bar sig í sjónvarpsviðtalinu þar sem hún sagði af sér á fimmtudag. „Sjálfur var ég hrein og bein tilfinningahrúga og hefði vafalaust ekki komið út úr mér einu orði í sjónvarpsviðtali án þess að brotna niður. Í mínum huga er hún algjör ofurhetja. Ég er, og mun alltaf vera, stoltur af því að vera sonur hennar.“ Stoltið gert tortryggilegt Þór Símon segir að stolt hans hafi nú verið gert tortryggilegt, meðal annars vegna þess hvernig fréttir um málið hafa verið framsettar. „En vegna fréttaflutnings á fimmtudag og þá sérstaklega vegna þess hvernig þær fréttir voru framsettar er búið að gera þetta stolt mitt tortryggilegt í augum almennings. Dómharkan sem ég hef orðið var við þrátt fyrir að hafa forðast eftir bestu getu alla frétta- og samfélagsmiðla frá því á fimmtudag var viðbúin en er engu að síður sorgleg. Af því sögðu er ég hins vegar gríðarlega þakklátur fyrir allan þann stuðning sem hún og ég og aðrir í fjölskyldunni höfum fengið.“ „Fordæming og dómur“ í fyrstu fréttum Það er mat Þórs að staðreyndir málsins hafi ekki komið á yfirborðið fyrr en móðir hans birti yfirlýsingu á föstudagsmorgun, en þá hafi skaðinn þegar verið skeður. Fyrstu fréttir hafi verið fullar af rangfærslum og til þess fallnar að mála Ásthildi upp sem „eitthvað skrímsli“. Hann segir að ekki hafi verið gætt nægjanlega vel að hennar hlið í málinu til að byrja með. „En staðreyndir eru mikilvægar í málum sem þessum og að þeirra sé gætt í jafn viðkvæmum persónulegum málum í fréttum. Að mínu mati hefur það ekki verið gert þar til yfirlýsing mömmu minnar var birt. En skaðinn var þá þegar skeður. Fyrstu fréttir af þessu máli voru fullar af rangfærslum sem voru til þess fallnar að mála mömmu mína upp sem eitthvað skrímsli. Rangfærslur sem hefði auðveldlega verið hægt að komast hjá ef mamma mín hefði fengið færi á að benda á þær fyrir birtingu fréttarinnar. Ég er ekki að fara fram á að þessi frétt hefði ekki verið birt yfir höfuð heldur einungis vandaðra vinnubragða þar sem gætt var hennar hliðar á málinu. Áherslur í fyrstu fréttum báru þess merki að það var ekki gert og í þeim fólst því fordæming og dómur byggður á einhliða upplýsingum.“ Til að mynda segir Þór Símon að fullyrðingar um að hún hafi verið leiðtogi eða leiðbeinandi innan Trúar og friðar vera rangar. Þess má geta að Ásthildur Lóa hefur einmitt hafnað því, og þá kannaðist Halldór Lárusson, einn af stofnendum og helstu forsvarsmönnum Trúar og lífs, ekki heldur við það að leiðbeinendur hefðu verið innan hópsins. Einnig minnist hann á að ónákvæmt hafi verið talað um aldur föður hans og móður. Engin áhersla hafi til að mynda verið lögð á það að blóðfaðir hans hefði verið orðinn fullorðinn þegar hann og Ásthildur áttu í sambandi. „Fullyrðingar um að mamma mín hafi verið leiðtogi eða leiðbeinandi innan safnaðirns voru rangar. Aldur blóðföðurs míns var einnig námundaðar niður í aldurinn þegar þau hittust fyrst en ekki þegar þau áttu í „sambandi“ og sérstaklega var tekið fram að ef þetta samræði hefði átt sér stað í dag væri það ólöglegt. Aldur mömmu hefur að sama skapi verið námundaður upp í aldurinn þegar hún eignaðist mig, þegar „sambandið“ var fyrir löngu búið. Þess var einnig ekki gætt eða lögð á það nein sérstök áhersla að samkvæmt lögum landsins fyrir 36 árum þegar þetta samband átti sér stað var blóðfaðir minn löglega orðinn fullorðin og að sams konar sambönd voru ekki óalgeng þá og ekki álitin hneykslanleg eins og þau eru í dag.“ Auðvelt að hrista hausinn í dag Þór Símon segir að það sé auðvelt að gagnrýna málið nú 36 árum síðar, en sannleikurinn sé sá að lögin og gildismatið var allt annað. „Við getum auðveldlega hrisst hausinn í dag, 36 árum síðar, og spurt „hvað var hún að spá?“ En veruleiki hennar og blóðföður míns var allt annar þá en hann er í dag. Mér finnst það vera gríðarlega mikilvægt í öllu samhengi málanna. Fram til 1996 hafði sjáflræðisaldurinn á Íslandi verið sá sami í um 700 ár. Samfélagið og gildismat okkar hefur þannig tekið stökkbreytingum á síðustu áratugum. Að mínu mati er ósanngjarnt að ætla að styðjast við nútíma viðhorf og lög yfir atburði sem gerðust fyrir bráðum fjörutíu árum.“ Fullyrðingar um tálmun hlægilegar Þór Símon gefur lítið fyrir ásaknir um tálmun, en Ásthildur hefur verið sökuð um að halda honum frá föðurnum. „Hvað meinta tálmun varðar þá finnst mér þær fullyrðingar í besta falli hlægilegar. Það er ekki við mömmu mína að sakast að ég hafi ekki átt samband við blóðföður minn á bernskuárunum og hvað þá núna þegar ég er fullorðinn maður. Það var aldrei neinn feluleikur í kringum faðerni mitt. Mamma sagði mér frá honum þegar ég var pínulítill,“ skrifar hann. „Ég man eftir að hafa hitt hann einu sinni þegar ég var sirka 8 ára og sýndi honum Fifa 98 leikinn minn. Í stað þess að slá því fram að hann hafi „einungis“ fengið tvær klst á mánuði með mér sem, eins og marg ítrekað var í fréttinni að samsvari 24 klukkustundum á ári hefði kannski verið vert að spyrja hversu margar af þessum 24 klukkustundum hann nýtti til samveru með mér?“ spyr Þór Símon og segir hægt að telja skiptin á fingrum annarar handar. „Einnig vil ég benda á að mamma mín hefur aldrei, ekki í eitt einasta skipti, talað illa um eða niður til blóðföðurs míns í mín eyru. Hvorki þegar ég var lítill eða þegar ég tjáði henni að ég væri að fara að hitta hann þegar ég var orðinn fullorðinn.“ Átti fallega stund með föður sínum Þór Símon greinir frá samskiptum hans og blóðföður síns eftir að hann varð fullorðin. Hann segist ekki hafa rætt við hann í fimmtán ár. „Ég og blóðfaðir minn hittumst fyrir tilviljun sumarið 2009 þegar hann kom á þáverandi vinnustað minn til að setja upp fiskabúr. Hann kynnti sig, við mæltum okkur mót og áttum eina góða kvöldstund saman þar sem ég hitti konu hans og hálf-systkini mín og er það góð minning. Hann lagði inn á mig pening einhverjum mánuðum síðar til að styrkja mig á meðan ég var í námi erlendis og ég þakkaði honum fyrir það með skilaboðum á Facebook. Það voru síðustu samskipti okkar, það er að segja fyrir fimmtán árum,“ segir hann. „Það er einnig vert að taka sérstaklega fram að þessi hittingur kom til vegna ótrúlegrar tilviljunar en ekki vegna þess að hann leitaðist eftir því af fyrra bragði að hitta mig. En síðan þá hefur ekkert stoppað hann nema hann sjálfur að hafa samband, hafi hann raunverulegan vilja til að eiga frekari samskipti við mig. Og ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hef ég aldrei haldið því gegn honum eða pælt neitt mikið í því fyrr en ég las um að mamma mín hefði samkvæmt honum tálmað hann og haldið mér frá honum.“ Þór Símon segist ekki vilja mála blóðföður upp í vondu ljósi. Hann upplifi þó föður sinn nú í „hinu liðinu“. „Með því að benda á þetta vil ég ekki mála blóðföður minn upp sem vonda manneskju. Ég hitti fjölskyldu hans fyrir 16 árum og þau voru yndisleg. Það var, að minnsta kosti þangað til á fimmtudag, einungis góð minning. Staðan er hins vegar þannig núna að búið er að draga mig, fjölskyldu mína og blóðföður minn inn í fjölmiðlastorm. Og það vill því miður svo til að hann er af því er virðist, ef svo má að orði komast, í hinu liðinu.“ Hafþór raunverulegur faðir hans Í lok færslu sinnar ræðir Þór Símon um Hafþór Ólafsson, eiginmann Ásthildar, og manninn sem hann álítur föður sinn. Þór fer fögrum orðum um Hafþór, en hann kennir sig við hann. „Ég eignaðist minn pabba, Hafþór Ólafsson, í kringum eins árs aldurinn. Ef einhver spyr mig hver pabbi minn er þá er það hann og enginn annar. Ég gæti ekki hafa óskað mér betri pabba en hann. Skortur á sambandi við blóðföður minn hefur því aldrei hvílt á mér að neinu leyti þangað til á fimmtudaginn og þá því miður vegna tilvistar hans frekar en fjarveru,“ segir Þór. „Ef einhverjir fjölmiðlar eru að velta fyrir sér að óska eftir viðtölum við mig um mín einkamál geta þeir algerlega sleppt því. Ég er, var og verð ánægður með samband mitt við foreldra mína Ástu Lóu og Hafþór og hef engu við það að bæta.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Barnamálaráðherra segir af sér Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Flokkur fólksins Mest lesið Áföll hafa mótað Guðmund Inga: „Ég læt ekki valta yfir mig“ Innlent Segir lögreglu þegar hafa heimildir til að kalla menn til þjónustu Innlent Sé skýrt að ráðherra hafi verið beittur þrýstingi Innlent Palestínskur leikstjóri barinn af landtökumönnum og handtekinn Erlent Stefna á að loka skólanum á næsta ári Innlent „Aflögunin er núna komin yfir öll fyrri mörk“ Innlent Spjallklúður Hegseth, Vance og Waltz vekur hneykslan Erlent Blöskrar að fyrrverandi sambýlismaður gangi laus Innlent „Þarna ertu ekki að tala um breytingu, heldur byltingu“ Innlent Bættu blaðamanni óvart í Signal-hóp um árásir á Húta Erlent Fleiri fréttir Opnunarsamkoma leiðtogafundar í menntamálum Spá 1,8 prósent hagvexti í ár og 2,7 prósent verðbólgu á næsta ári „Þarna ertu ekki að tala um breytingu, heldur byltingu“ Áföll hafa mótað Guðmund Inga: „Ég læt ekki valta yfir mig“ Samningar í höfn við sveitarfélögin en ekki ríkið Segir lögreglu þegar hafa heimildir til að kalla menn til þjónustu „Aflögunin er núna komin yfir öll fyrri mörk“ Sé skýrt að ráðherra hafi verið beittur þrýstingi Stefna á að loka skólanum á næsta ári Ætlar að gefa kerfinu verkfæri til að taka á eltihrellum Viðkvæmt mál, lokakafli og ökklabönd á eltihrella Verkfræðingar felldu samning „Við skulum ekki gera pólitík úr þessu máli“ Hafnfirðingar greiða Rio Tinto 26 milljónir vegna Reykjanesbrautar Sinnir ekki þingstörfum á næstunni Vilja herða mengunarvarnir í lögsögu Íslands MAST rannsakar gat á sjókví Arnarlax í Patreksfirði Bjargaði sér í Afríku þegar Vestfjarðaflugið gekk ekki Rúmbetri sjúkrabílar á leið á göturnar Guðrún Hafsteinsdóttir heldur fast í Árna Grétar Hratt vaxandi skjálftavirkni Blöskrar að fyrrverandi sambýlismaður gangi laus Trén fallin Trjáfellingum lokið í Öskjuhlíð og enn er beðið eftir gosi Manni kastað fram af svölum fyrir norðan Svefnvana Gnarr varð var við grunsamlegan skemmdarvarg Kvikmyndaskóli Íslands er gjaldþrota Skemmdi bíl og stakk svo eigandann meðan sonurinn var í næsta herbergi Vill að sveitarfélögum verði skylt að semja við einkarekna skóla Útköll vegna tveggja vélsleðamanna og stjórnlauss fiskibáts Sjá meira