Steldu stílnum af heimili Svönu Lovísu Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 31. mars 2025 15:43 Svana Lovísa og fjölskylda búa í fallegri íbúð í Hafnarfirði. Svana Lovísa Kristjánsdóttir, vöruhönnuður og áhrifavaldur, býr ásamt manni sínum, Andrési Andréssyni og börnum þeirra tveimur á fallegu heimili í hjarta Hafnarfjarðar sem hefur verið innréttað af mikilli smekkvísi.
Fjölskyldan festi kaup á eigninni árið 2018 og hafa gert ýmislegt fyrir heimilið á ódýran og sem hagstæðastan hátt án þess að fara í dýrar framkvæmdir. „Við höfum gert alveg heilmikið hérna heima, bæði sem er hægt að sá og mjög margt af þessu ósýnilega, eins og þessar stóru framkvæmdir sem við þurftum líka að ráðast í. Auðvitað máluðum við það bleikt,“ sagði Svana Lovísa samtali við Völu Matt í Íslandi í dag í júní í fyrra. Bleikur litur og björt rými Svana Lovísa deilir reglulega myndum af heimili fjölskyldunnar á samfélagsmiðlum. Stíllinn á heimilinu afar hrífandi þar sem samblanda af klassískri hönnun og litríkum innanstokksmunum eru í aðalhlutverki. Stofa og borðstofa er samliggjandi í opnu rými með góðu útsýni yfir bæinn. Við borðstofuborðið má sjá hina klassísku stóla J39, hönnun eftir Børge Mogensen frá árinu 1947. Við enda borðsins má sjá hina sígildu CH-24 stóla, oft nefnda Y-stólana, í sápuborinni eik, eftir Wegner, hannaðir árið 1949. Þá má einnig sjá aðra formfagra og klassíka stóla á heimilinu eftir danska hönnuðinn Arne Jacobsen, Sjöuna og Dropann í bleikum lit, og sérstaka útgáfu af Svaninum í ljósu leðri. Stólarnir blandast fallega saman og skapa tímalaust yfirbragð á heimilinu. View this post on Instagram A post shared by Svana Lovísa Kristjánsdóttir (@svana.svartahvitu) Eldhúsið er rúmgott og bjart með notalegum borðkrók, málað í ljósbleikum lit sem endurspeglar persónulegan stíl Svönu Lovísu. Í eldhúsinu má sjá stílhreina hvíta innréttingu með ljósum steini á borðum sem nær upp á vegg. Á veggnum fyrir ofan innréttinguna er opin hilla, þar sem vatnskönnur frá Georg Jensen og kaffibollar úr smiðju Royal Copenhagen fá að njóta sín til fulls. Notaleg lýsing Lampar úr smiðju danskra hönnuði eru einnig áberandi á heimilinu. Fyrir ofan eldhúsborðið hangir hinn sígildi PH 5-lampi eftir Poul Henningsen, sem hann hannaði fyrir ljósaframleiðandann Louis Poulsen árið 1958. Í borðstofunni gefur Panthella-gólflampinn, sem Verner Panton hannaði árið 1971, mjúka og notalega birtu sem er einkennandi fyrir hönnun hans.
Hús og heimili Tíska og hönnun Hafnarfjörður Tengdar fréttir Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur búið sér til fallegt heimili í Los Angeles, þar sem klassísk skandinavísk hönnun mætir hlýlegum og sjarmerandi stíl. Laufey deildi nýverið myndum úr dúkkuhúsinu sínu, eins og hún orðaði það, með fylgjendum sínum á Instagram. 25. september 2024 17:01 Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Leikkonan og flugfreyjan Kristín Pétursdóttir hefur skapað sér og fjölskyldu sinni einstaklega fallegt og hlýlegt heimili í íbúð við Njálsgötu í hjarta Reykjavíkur. Eignin er 69 fermetrar að stærð í reisulegu húsi sem hefur verið í eigu fjölskyldu hennar allt frá árinu 1930. 2. mars 2025 20:01 Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira
Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur búið sér til fallegt heimili í Los Angeles, þar sem klassísk skandinavísk hönnun mætir hlýlegum og sjarmerandi stíl. Laufey deildi nýverið myndum úr dúkkuhúsinu sínu, eins og hún orðaði það, með fylgjendum sínum á Instagram. 25. september 2024 17:01
Steldu stílnum af heimili Kristínar Péturs Leikkonan og flugfreyjan Kristín Pétursdóttir hefur skapað sér og fjölskyldu sinni einstaklega fallegt og hlýlegt heimili í íbúð við Njálsgötu í hjarta Reykjavíkur. Eignin er 69 fermetrar að stærð í reisulegu húsi sem hefur verið í eigu fjölskyldu hennar allt frá árinu 1930. 2. mars 2025 20:01