Selfoss skaust aftur upp í Olís-deildina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. apríl 2025 19:34 Selfoss mun leika í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili. Selfoss Handbolti Selfoss tryggði sér sæti í Olís-deild karla í handbolta með 27-26 sigri gegn Gróttu í fjórða leik liðanna í umspili um laust sæti í efstu deild í kvöld.
Eftir níu marka sigur Gróttu í fyrsta leik höfðu hinir tveir leikir liðanna verið gríðarlega jafnir og á því varð engin breyting í kvöld. Selfyssingar leiddu einvígið 2-1 og Grótta því með bakið upp við vegg. Jafnræði ríkti með liðunum stærstan hluta leiksins, en Gróttumenn virtust þó skrefinu framar í fyrri hálfleik. Gestirnir leiddu með þremur mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 10-13, Gróttu í vil. Áfram voru Selfyssingar að elta í seinni hálfleik. Heimamenn hleyptu Gróttu þó ekki of langt frá sér og minnkuðu muninn niður í eitt mark þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Fjórum mínútum síðar komust Selfyssingar svo yfir í stöðunni 25-24 með marki frá Hákoni Garra Gestssyni. Við tóku æsispennandi lokamínútur. Selfyssingar náðu tveggja marka forskoti, en liðin skiptust svo á að skora. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði mikilvægan bolta fyrir heimamenn þegar tæp mínúta var til leiksloka og Selfyssingar tók leikhlé í stöðunni 26-25. Hannes Höskuldsson skoraði fyrir Selfoss strax eftir leikhléið, en Jón Ómar Gíslason svaraði fyrir Gróttu þegar enn voru 45 sekúndur eftir á klukkunni. Ekki urðu mörkin hins vegar fleiri og Selfyssingar unnu því að lokum eins marks sigur, 27-26. Selfoss tekur sér því sæti í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili eftir eins árs veru í Grilldeildinni. Grótta er hins vegar fallin niður um deild.
Olís-deild karla UMF Selfoss Grótta Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira