Viðskipti innlent

Verslun Nettó í Glæsi­bæ opnar lík­lega á morgun

Lovísa Arnardóttir skrifar
Íbúar eru forvitnir um opnun verslunarinnar.
Íbúar eru forvitnir um opnun verslunarinnar. Vísir/Ívar Fannar

Verslun Nettó í Glæsibæ verður að öllum líkindum opnuð á morgun. Tafir hafa verið á opnun verslunarinnar vegna þess að sækja þurfti um nýtt starfsleyfi í kjölfar þess að millivegur var rifinn niður til að stækka verslunina.

„Við erum ótrúlega spennt. Verslunin er 400 fermetrar og er hin glæsilegasta,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa.

Hún segir að ætlun þeirra hafi verið að nýta starfsleyfið sem var í gildi fyrir verslunina Iceland sem áður var í rýminu en eftir að veggurinn var rifinn niður hafi þeim verði tilkynnt að þau þyrftu að sækja um nýtt leyfi.

„Við gerðum ekki ráð fyrir því að þessi breyting væri þess eðlis að hún hefði áhrif á starfsleyfi eða önnur opinber leyfi til verslunarreksturs og opnuðum við því verslunina í góðri trú. Við fengum hins vegar að vita frá borgaryfirvöldum að með því að rífa þennan vegg værum við í þeirri stöðu að þurfa að fá nýtt starfsleyfi. Við sóttum samstundis um slíkt leyfi,“ segir Gunnur Líf.

Búið er að færa inngang verslunar að gömlum inngangi veitingastaðarins Saffran sem áður var í Glæsibæ. Saffran flutti í Fákafen á síðasta ári. Vísir/Ívar Fannar

Byggingarfulltrúi hefur nú gefið út nýtt leyfi en áður en þau geta opnað verslunina verður einhver að koma að taka verslunina út. Gunnur á von á því að það verði gert í fyrramálið og svo verði hægt að opna verslunina eftir það.

„Við verðum með góð tilboð og ætlum að vera með grill á laugardaginn fyrir,“ segir Gunnur Líf.

Þessi miði blasir við þeim sem ætla sér að versla í Nettó í Glæsibæ. Vísir/Ívar Fannar

Samkaup á og rekur bæði verslanir Nettó og Iceland. Tilkynnt var árið 2023 að loka ætti verslunum Iceland á Íslandi og breyta þeim í Nettó verslun. Enn eru tvær Iceland verslanir reknar á Íslandi, önnur í Staðarbergi í Hafnafirði og hin í Vesturbergi í Breiðholti í Reykjavík. Gunnur segir Samkaup á þeirri vegferð að loka þessum verslunum og breyta þeim en það þurfi þó alltaf að taka tillit til ýmissa ástæða eins og hvort rými þarfnist breytinga.


Tengdar fréttir

Lækka það sem fæst hjá öðrum en hækka hitt

Dæmi eru um að verð á vörum sem fást aðeins í einni verslunarkeðju hafi hækkað, á meðan verð á sambærilegum vörum sem eru fáanlegar víðar hafa lækkað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar verðlagseftirlits ASÍ. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×