Lífið

Sætar og seiðandi ein­hleypar sumarskvísur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það er ekki seinna vænna en að slæda í dm's á meðan þessar sjóðheitu skvísur eru enn á lausu. 
Það er ekki seinna vænna en að slæda í dm's á meðan þessar sjóðheitu skvísur eru enn á lausu. 

Akkúrat núna eru óvenjumargar stórglæsilegar og sjarmerandi konur á lausu. Í tilefni þess hefur Lífið á Vísi með dyggri aðstoð álitsgjafa sem telja sig hafa puttann á púlsinum tekið saman lista yfir konur sem eru hver annarri glæsilegri og kunna að njóta að lífsins til fulls.

Birgitta Líf Björnsdóttir - 32 ára

Birgitta Líf er lögfræðimenntaður markaðsstjóri World Class. Hún er miklu meira en það, er áhrifavaldur og myndu sumir fullyrða að þarna sé á ferðinni glæsilegasta kona landsins. Auk þess er hún meðlimur raunveruleikahópsins LXS sem hefur slegið rækilega í gegn í samnefndum þáttum sem eru að trylla allt á Sýn+.

Birta Abiba - 25 ára

Birta er ein farsælasta fyrirsæta okkar Íslendinga og líklega sú eina sem gæti fyrir alvöru gert tilkall til titilsins ofurfyrirsæta. Hún er búsett í New York þar sem hún situr fyrir hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum heims eins og McDonald's og Fila svo fá ein séu nefnd. Birta er stórglæsileg og nær að heilla alla með sínu fallega brosi, dillandi hlátri og góða húmor! 

Elsa Harðardóttir - 36 ára

Elsa er rekstrarstjóri hjá viðburðafyrirtækinu Eventum, rithöfundur og sannkallaður heklsnillingur. Þegar hún tekur sér hlé frá annasömum verkefnum sækir hún orku í náttúruna þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín. Elsa er þekkt fyrir glæsilegt útlit og heillandi persónuleika.

Sjá: Eggert Gunn­þór og Elsa selja einbýlið

Móeiður Sif Skúladóttir - 37 ára

Móeiður Sif, betur þekkt sem Móa, er Keflavíkurmær sem starfar sem flugfreyja hjá Icelandair. Móa vakti athygli þegar hún keppti fyrir hönd Keflavíkur í Ungfrú Ísland í byrjun apríl og sló þar sögulegt met sem elsti keppandi keppninnar frá upphafi. Móa er hrókur alls fagnaðar, sjálfsörugg og óhrædd við að elta draumana sína.

Mynd/Arnór Trausti

Helga Margrét Agnarsdóttir - 26 ára

Helga starfar sem lögfræðingur og sér einnig um markaðsmál hjá Lindex, Ginu Tricot og Mayoral á Íslandi. Hún hefur gott auga fyrir tísku, er fagurkeri og sannur nautnaseggur. Hún lifir lífinu lifandi, umvafin björtum litum og með jákvæðni að leiðarljósi.

Hildur Skúladóttir - 34 ára

Hildur starfar sem sálfræðingur og ber með sér góða og hlýja nærveru. Dökkt hár, ljómandi bros og hlátur sem fyllir hjörtu – hún hefur þann einstaka hæfileika að skapa umhverfi þar sem allir finna fyrir öryggi og gleði. Hún gerir lífið svo sannarleg skemmtilegra fyrir alla í kring.

Sonja Backman - 41 árs

Sonja starfar sem lögfræðingur og er þekkt fyrir að heilla fólk upp úr skónum með einstökum persónutöfrum. Hún leggur ríka áherslu á heilsusamlegan lífsstíl og er mikil ævintýrakona sem þykir fátt skemmtilegra en að njóta sín í faðmi góðra vina í náttúrunni. Sonja er sjarmerandi, örugg og stórglæsileg í alla staði.

Ásthildur Úa Sigurðardóttir-34 ára

Leikkonan Ásthildur Úa útskrifaðist frá leikaradeild Listaháskóla Íslands vorið 2019. Eftir það lék hún með sjálfstæðu leikhúsunum áður en hún var ráðin til Borgarleikhússins árið 2020. Þar hefur Ásthildur meðal annars leikið í Emil í Kattholti, Macbeth, Svartþresti og Kvöldstund með Heiðari snyrti. Hún er mikið hæfileikabúnt sem bræðir alla með sínu fallega brosi.

Ásthildur Úa

Linda Dröfn Gunnarsdóttir - 49 ára

Linda Dröfn er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir óeigingjarnt starf sitt og laðar að sér athygli með skemmtilegum persónutöfrum. Hún var ein af hundrað áhrifamestu konum heims samkvæmt BBC og er gríðarleg fyrirmynd. Hún er ekki bara glæsileg, heldur líka einstaklega klár og drífandi!

Vísir/Einar Árnason

Sigrún María Jörundsdóttir - 32 ára

Sigrún starfar hjá framleiðslufyrirtækinu Silfra en hún er með víðtæka reynslu í framleiðslu myndefnis og auglýsingagerð. Sigrún er algjört gull af konu, þrælklár, skemmtileg og með fallegasta bros norðan Alpafjalla.

Fanney Skúladóttir - 35 ára

Fanney Skúladóttir er smábæjarstúlka utan af landi og markaðsstjóri Blush. Hún er óhrædd við að takast á við nýjar áskoranir, tekur sjálfri sér ekki of alvarlega og hefur gaman af því að stíga út fyrir þægindarammann og prófa eitthvað nýtt. 

Thelma Guðmundsen - 34 ára

Thelma er förðunarfræðingur og áhrifavaldur. Hún er með einstakan smekk og þor til að prófa nýja strauma og stefnur. Hún er talin ein sú allra skemmtilegasta og er afar blíð á manninn. Telma er vinsæl á Instagram þar sem hún birtir fallegar myndir reglulega.

Anna Margrét - 41 árs

Anna Margrét er kona margra hatta, hún er sjálfstætt starfandi leikkona, söngkona, stundum útvarpsskona og svo er hún aðstoðarforstöðukona í félagsmiðstöð. Hún hefur lýst sjálfri sér sem einlægri og seinheppinni skellibjöllu. Hún hefur sagt það hafa mótað sig mest að vera örverpi alin upp í litlu samfélagi en Anna Margrét er frá Þorlákshöfn.

Sjá einnig: Ein­læg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið

Guðrún Svava Egilsdóttir - 21 árs

Áhrifavaldurinn Guðrún, sem er betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, starfar sem ritari og aðstoðarkona hjá Kirópraktorstofu Íslands samhliða því að nema viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst. Gugga er algjör skívsa og mikil stemningskona sem er gaman að vera í kringum.

Gugga í gúmmíbát er sannkölluð ofurskvísa.Instagram

María Gomez-47 ára

María Gomez, matgæðingur, áhrifavaldur og lífstílsbloggari, er hálfspænsk, sjarmerandi og glæsileg kona sem kann að njóta lífsins. Hún flutti í fyrra til Spánar ásamt fjölskyldu sinni til að láta gamlan draum rætast og koma á fót ferðaþjónustu í spænsku fjallaþorpi sem hefur átt hug hennar og hjarta í mörg ár. 

Karólína Lea Vil­hjálms­dótt­ir - 23 ára

Knattspyrnukonan Karólína Lea er ein af lykilleikmönnum íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Hún er grjóthörð en blíð að innan og heillar hvern með sínu blíða brosi. Karólína skrifaði nýverið undir samning hjá stórliðinu Inter í Mílanó á Ítalíu. Hún var samningsbundin þýska úrvalsdeildarliðinu Bayern München en hefur leikið með Bayer Leverkusen síðustu tvö tímabil þar sem hún var á láni.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er stödd með íslenska landsliðinu á EM í Sviss þar sem að Ísland spilar sinn fyrsta leik gegn Finnlandi á miðvikudaginn kemur.Vísir/Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.