Sport

Sá ó­heppnasti enn á ný ó­heppinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 Jannik Sinner styður hér við grátandi Grigor Dimitrov efir að ljóst var að Búlgarinn gæti ekki haldið áfram.
 Jannik Sinner styður hér við grátandi Grigor Dimitrov efir að ljóst var að Búlgarinn gæti ekki haldið áfram. Getty/Julian Finney

Dramatíkin var allsráðandi á Wimbledon mótinu í tennis í gærkvöldi þegar tveir góðir vinir mættust og börðust um sæti í átta manna úrslitunum.

Grigor Dimitrov getur svo sannarlega gert tilkall til þess að vera óheppnasti tennisspilari heims. Atvik á Wimbledon mótinu í gærkvöldi gerir ekkert annað en að ýta undir það.

Búlgarinn varð þá að hætta keppni í sextán manna úrslitunum á Wimbledon mótinu í gær þegar hann var 2-0 yfir á móti Ítalanum Jannik Sinner og sigurinn í sjónmáli.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ sagði Jannik Sinner eftir að hann komst áfram í átta manna úrslit þrátt fyrir að vera að tapa leiknum þegar leik var hætt.

Þetta er fimmta risamótið í röð þar sem að Dimitrov verður að hætta vegna meiðsla.

Dimitrov hélt um brjóstvöðvann sinn eftir að hafa reynt uppgjöf upp í þriðja setti. Hann hló fyrst í geðshræringu en svo fóru tárin að renna.

„Hann hefur verið svo óheppinn áður. Hann er líka góður vinur minn og það er erfitt að sjá hann svona. Hann átti skilið að fara áfram. Ég vona að hann nái sér fljótt. Þetta var mikil óheppni og ég sé þetta ekki sem sigur. Þetta er mjög óheppilegt,“ sagði Sinner.

„Hann er ótrúlegur tennisspilari og við sáum það öll í kvöld,“ sagði Sinner. Búlgarinn vann fyrstu settin 6–3 og 7–5 sem þýddi að honum vantaði bara eitt í viðbót til að vinna leikinn.

Sinner var fljótur að fara til Dimitrov þegar hann sá að hann var meiddur. Dimitrov yfirgaf völlinn um stund en kom síðan aftur inn og tók í höndina á Sinner. Viðurkenndi tap af því að hann gat ekki haldið áfram.

Ítalinn mætir Ben Shelton í átta manna úrslitunum en viðureignirnar má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×