Tíska og hönnun

Upp­runa­lega Birkin taskan seld á rúman milljarð

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Ef vel er að gáð má sjá skammstöfun Jane Birkin, J. B., framan á töskunni.
Ef vel er að gáð má sjá skammstöfun Jane Birkin, J. B., framan á töskunni. AP

Hin upprunalega Birkin taska, framleidd af tískuhúsinu Hermés, var seld á 8,6 milljónir evra á uppboði í París á dögunum, sem samsvarar um 1,2 milljörðum íslenskra króna. Taskan er dýrasti fylgihluturinn sem seldur hefur verið á uppboði í Evrópu.

Líkt og tískuunnendum er kunnugt var taskan upprunalega hönnuð fyrir bresk-frönsku söng- og leikkonuna Jane Birkin. Hún fór frjálslega með töskuna, líkt og sjá má á myndinni að ofan, og hengdi til að mynda á hana límmiða.

Skissaði uppkastið á ælupoka

Reiknað var með að verð fyrir fyrirmyndina að Birkin töskunni yrði milljón evrur hið minnsta. Japanskur safnari bauð hæst, 8,6 milljónir evra og gerði töskuna því að næstdýrmætustu tískuvöru í heimi og þeirri dýrustu í Evrópu.

Dýrasti tískugripur sem seldur hefur verið á uppboði eru hinir upprunalegu rúbínrauðu skór Dóróteu úr kvikmyndinni Galdrakarlinn í Oz. Þeir seldust á tæpa fjóra milljarða króna. 

Sagan af uppruna töskunnar er rakin í umfjöllun AP, en hún er sú að Birkin og Jean-Louis Dumas, þáverandi forstjóri Hermés, hafi kynnst þegar þau voru sessunautar í flugferð og Birkin sullað kaffi yfir hann fyrir slysni. Þá hafi þau byrjað að spjalla og hún tjáð honum að henni þætti engin handtaska henta þörfum hennar. Henni þætti flestar töskur á markaðnum helst til of litlar. 

Hann hafi þá byrjað að skissa upp uppkast að tösku aftan á ælupoka. Skissan hafi síðan orðið að alvöru tösku sem er nú óumdeilanlega einn þekktasti tískugripur sögunnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.