FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2025 16:01 Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, fagnar marki í sumar. vísir / guðmundur FH-ingar geta í kvöld eignast lið í bikarúrslitaleik kvenna í fyrsta sinn í sögunni þegar FH liðið heimsækir bikarmeistara Vals á Hlíðarenda í undanúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Þetta er fyrri undanúrslitaleikurinn en Breiðablik og ÍBV mætast í hinum leiknum á fimmtudagskvöldið. Í boði er sæti í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli, fyrsta bikarúrslitaleiknum á nýja gervigrasinu. FH hefur spilað vel í sumar en liðið er þremur sætum og tíu stigum á undan Val í Bestu deildinni. FH konur ætla að skrifa söguna eins og sjá má á samfélagsmiðlum félagsins. Svar allra viðmælanda var stutt og skýrt. „Á morgun erum við að fara að skrifa söguna“. Valskonur eiga bikar að verja síðan í fyrra og kvennalið Vals hefur alls komist 23 sinnum í bikarúrslitaleikinn. Það er því mjög ólíkt komið með reynslu þeirra af því að komast alla leið. Þetta er þriðja tilraun FH-liðsins við bikarúrslitaleikinn á síðustu fimm árum en liðið tapaði undanúrslitaleiknum 2021 og 2023. Haustið 2021 tapaði liðið á móti Þrótti og árið 2023 á móti verðandi bikarmeisturum Víkings. FH komst einnig í undanúrslitin árið 2001 en tapaði þá á móti verðandi bikarmeisturum Vals. Fyrsti bikarúrslitaleikur kvennaliða félaga: 1. Breiðablik (1981) 1. Valur (1981) 3. ÍA (1983) 4. Þór Ak. (1989) 5. Keflavík (1991) 5. Stjarnan (1993) 6. KR (1994) 7. ÍBV (2003) 8. Þór/KA (2013) 9. Selfoss (2014) 10. Þróttur (2021) 11. Víkingur R. (2023) View this post on Instagram A post shared by Fimleikafélag Hafnarfjarðar (@fhingar) Mjólkurbikar kvenna FH Valur Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Sjá meira
Þetta er fyrri undanúrslitaleikurinn en Breiðablik og ÍBV mætast í hinum leiknum á fimmtudagskvöldið. Í boði er sæti í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli, fyrsta bikarúrslitaleiknum á nýja gervigrasinu. FH hefur spilað vel í sumar en liðið er þremur sætum og tíu stigum á undan Val í Bestu deildinni. FH konur ætla að skrifa söguna eins og sjá má á samfélagsmiðlum félagsins. Svar allra viðmælanda var stutt og skýrt. „Á morgun erum við að fara að skrifa söguna“. Valskonur eiga bikar að verja síðan í fyrra og kvennalið Vals hefur alls komist 23 sinnum í bikarúrslitaleikinn. Það er því mjög ólíkt komið með reynslu þeirra af því að komast alla leið. Þetta er þriðja tilraun FH-liðsins við bikarúrslitaleikinn á síðustu fimm árum en liðið tapaði undanúrslitaleiknum 2021 og 2023. Haustið 2021 tapaði liðið á móti Þrótti og árið 2023 á móti verðandi bikarmeisturum Víkings. FH komst einnig í undanúrslitin árið 2001 en tapaði þá á móti verðandi bikarmeisturum Vals. Fyrsti bikarúrslitaleikur kvennaliða félaga: 1. Breiðablik (1981) 1. Valur (1981) 3. ÍA (1983) 4. Þór Ak. (1989) 5. Keflavík (1991) 5. Stjarnan (1993) 6. KR (1994) 7. ÍBV (2003) 8. Þór/KA (2013) 9. Selfoss (2014) 10. Þróttur (2021) 11. Víkingur R. (2023) View this post on Instagram A post shared by Fimleikafélag Hafnarfjarðar (@fhingar)
Fyrsti bikarúrslitaleikur kvennaliða félaga: 1. Breiðablik (1981) 1. Valur (1981) 3. ÍA (1983) 4. Þór Ak. (1989) 5. Keflavík (1991) 5. Stjarnan (1993) 6. KR (1994) 7. ÍBV (2003) 8. Þór/KA (2013) 9. Selfoss (2014) 10. Þróttur (2021) 11. Víkingur R. (2023)
Mjólkurbikar kvenna FH Valur Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Sjá meira