Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Andri Broddason skrifar 11. október 2026 22:26 Orri Hrafn var ánægður að ekki fór verr þegar hann lenti á hálsinum. Diego/Vísir Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR, lenti illa á hálsinum í leik gegn Fram um helgina. Betur fór en á horfðist en þrátt fyrir það var Orri Hrafn ósáttur með nokkra stuðningsmenn Fram.
Orri Hrafn varð skiljanlega fyrir miklu sjokki þegar hann fann að hann lenti illa á hálsinum og var guðsfeginn sjúkraþjálfara KR og sjúkraþjálfara Fram sem komu báðir til að aðstoða hann. Orri Hrafn lá lengi á vellinum þar sem sjúkraþjálfarar beggja liða voru að ganga úr skugga um að það væri í lagi með hann. Einhverjir stuðningsmenn Fram voru ósáttir við hvað Orri Hraf var lengi liggjandi og byrjuðu að kalla á hann. Orri Hraf talaði um málið í færslu á Facebook sem hann sagði að væri óþægilegt fyrir hans nánasta fólk. „Á meðan ég lá á vellinum, með sjúkraþjálfara beggja liða í kringum mig, biðu [fjölskylda og aðstandendur] áhyggjufull og óviss um hversu alvarleg meiðslin væru. Á sama tíma þurftu þau að hlusta á stuðningsmenn Fram kvarta yfir því hversu lengi leikurinn væri stöðvaður, kalla á mig að drullast á lappir, segja mig vera aumingja og láta ýmis önnur óviðeigandi ummæli falla,“ sagði Orri Hrafn í færslu sinni. Klippa: Meiðsli Orra í leik Fram „Þegar pabbi minn, eðlilega orðinn ósáttur við þessa framkomu, kallaði til stuðningsmanna að haga sér eins og menn, tók einn fullorðinn maður sig til og fór að ögra honum. Með ýmsum athugasemdum, svipbrigðum og handahreyfingum hélt hann áfram að espa upp aðstæður sem voru þegar orðnar erfiðar fyrir fjölskyldu mína.“ Orri Hrafn sagði að þegar hann hafi staðið upp eftir að sjúkraþjálfarar voru búnir að ganga úr skugga um að í lagi væri með hann hafi hann heyrt fleiri stuðningsmenn Fram hrópa á hann. Það hafi þó hjálpað að stuðningsmenn KR klöppuðu eftir að hann stóð aftur á fætur. Stoltur af yngri bróður sínum Eftir að Orri Hrafn var farinn af velli fór 16 ára litli bróðir hans og lét stuðningsmann Fram vita að hann hefði verið að fíflast í pabba Orra. Við þá uppgötvun sá stuðningsmaðurinn við sér og baðst afsökunar. Í lok færslunnar vill Orri Hrafn halda stuðningi áfram en að hægt sé hvíla mikinn ríg í alvarlegum aðstæðum. „Ég hef ekkert á móti því að stuðningsmenn láti í sér heyra. Ég get tekið því að sungið sé um mig, gert grín að mér eða kallað til mín á meðan að á leik stendur. Það er hluti af íþróttunum og þeirri stemningu sem við viljum hafa á vellinum. En þegar atvik eins og þetta eiga sér stað þurfa allir að geta lagt ríginn til hliðar og sýnt smá mannúð og virðingu. Gerum betur.“ Meiðsli Orra má sjá í spilaranum að ofan.
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla KR Fram Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira