Brentford að slá félagaskiptametið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. ágúst 2025 16:32 Dango Ouattara er á förum frá Bournemouth. epa/SARAH YENESEL Brentford hefur komist að samkomulagi við Bournemouth um kaup á framherjanum Dango Ouattara.
Brentford hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku í sumar. Knattspyrnustjórinn Thomas Frank fór til Tottenham, fyrirliðinn Christian Nørgaard til Arsenal og markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili, Bryan Mbuemo, gekk í raðir Manchester United. Þá er næstmarkahæsti leikmaðurinn, Yoane Wissa, væntanlega á leið frá Brentford. Ouattara var ekki fastamaður hjá Bournemouth á síðasta tímabili en skoraði samt níu mörk í öllum keppnum. Hinn 23 ára Ouattara, sem er landsliðsmaður Búrkina Fasó, kom til Bournemouth frá Lorient fyrir tveimur árum. Talið er að Brentford greiði 42,5 milljónir punda fyrir Ouattara. Það gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu Brentford. Koma hans eykur væntanlega líkurnar á að Wissa fari til Newcastle United sem hefur mikinn áhuga á kóngólska framherjanum. Keith Andrews, stjóri Brentford, hefur sagt að Wissa muni ekki spila gegn Nottingham Forest í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn. Brentford endaði í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira