Kennir kettinum hundatrix og heklar á hann föt Stefán Árni Pálsson skrifar 19. ágúst 2025 10:00 Helena er deildarstjóri hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur „Maður kemur til vinnu og veit aldrei við hverju er að búast,“ segir Helena Gylfadóttir í þætti af Íslandi í dag sem var á Sýn í síðustu viku.
Helena er deildarstjóri hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur og einnig í Húsdýragarðinum í Laugardal. Dýraþjónusta Reykjavíkur tekur á öllum málum sem snúa að dýrum í borgarlandinu, hvort sem það eru villt dýr í hremmingum, týnd gæludýr eða ónæði af málleysingjum og því geta sum málin tekið verulega á. Helena segist samt vera í draumavinnunni og gæti ekki hugsað sér annan starfsvettvang. Helena leiðir okkur um Húsdýragarðinn í Íslandi í dag og þegar kemur að því að velja sinn stað í garðinum fer ekkert á milli mála hvaða staður er í sérstöku uppáhaldi - Selalaugin. Selirnir eru raunar dýrin sem koma henni mest á óvart, þó þau geti verið nokkuð skapstygg. Við fáum líka að kynnast svínunum, fálkanum Ljúfu og refnum Heiðari svo fátt eitt sé nefnt. Síðan býður Helena okkur heim til sín þar sem búa kötturinn Þruma og kettlingurinn Gúrka. „Kettirnir eiga heima hérna og við fáum bara að vera með,“ segir Helena en heimilið er undirlagt af kattadóti. Helena hefur meira að segja heklað föt í stíl á sig og Þrumu og kennt henni allskyns trix sem sumir halda að séu kannski fyrir hunda.
Ísland í dag Dýr Kettir Hundar Gæludýr Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira