Biskup lætur Rúv heyra það vegna umræðunnar í gær Árni Sæberg skrifar 2. september 2025 15:54 Guðrún biskup er ekki ánægð með að Snorri hafi fengið að viðra skoðanir sínar um trans fólk á Rúv í gær. Vísir Biskup Íslands segir skjóta skökku við að Ríkisútvarpið hafi lagt áherslu á að ræða skoðanir fólks á tilvist trans fólks, á setningardegi forvarna gegn sjálfsvígum. Gulur september hófst í gær en það er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, stakk niður penna hér á Vísi til þess að vekja athygli á verkefninu. Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is. Mun fleiri látast í sjálfsvígum en í umferðinni Biskup segir að á hverju ári deyi um fjörutíu manns í sjálfsvígum hér á landi, sem séu til dæmis mun fleiri en í bílslysum. Íslendingar séu stöðugt að auka öryggið í umferðinni til þess að koma í veg fyrir slys og andlát en því miður hafi okkur sem þjóð mistekist að nálgast öryggi geðheilbrigðis á sama hátt. „Verði flugslys, bílslys, sjóslys eða slys á vinnustað er það samkvæmt lögum rannsakað af rannsóknarnefndum umferðarslysa, flugslysa, sjóslysa eða vinnueftirlitinu. Rannsóknir þessar eru ekki sakamálarannsóknir heldur eru að öllu leyti til þess að læra af reynslunni og koma í veg fyrir að sams konar slys endurtaki sig. Þannig hefur okkur undanfarin ár tekist að stórauka öryggi í lofti, láði og legi. Þetta módel þurfum við nú að yfirfæra á dauðsföll sem rekja má til geðheilbrigðisvanda,“ segir hún. Skýrt að bæta þurfu öryggi geðheilbrigðis Sem þjónn í Þjóðkirkjunni hafi hún gengið með ótal mörgum fjölskyldum sem misst hafa ástvini í sjálfsvígi, auk þess sem hún hafi stutt fólk sem hefur verið í sjálfsvígshugleiðingum. Þá hef hafi hún sjálf misst náinn ástvin í sjálfsvígi. „Ég hef því, eins og aðrir þjónar Þjóðkirkjunnar, langa reynslu af því að vinna með bæði sjálfsvígsforvarnir og afleiðingar sjálfsvíga. Við í kirkjunni sjáum svo skýrt að það þarf að bæti öryggi geðheilbrigðis hér á landi.“ Ekki til þess fallið að fækka sjálfsvígum „Við verðum, sem samfélag, að taka okkur á þegar kemur að sjálfsvígsforvörnum og því vil ég hvetja öll félagasamtök, stofnanir, Alþingi Íslendinga, já öll þau sem láta sig náungann varða, til þess að taka þetta málefni upp á sína arma og láta sig geðheilsu íbúa þessa lands varða. Ég vona einnig að fjölmiðlar taki þátt í því.“ Það hafi því verið þó nokkur vonbrigði að sjá að áhersla Kastljóssins á Rúv, 1. september, hafi verið að ræða skoðanir fólks á tilvist eins ákveðins minnihlutahóps í samfélaginu sem nú berst fyrir tilverurétti sínum. Þar vísar hún til umræðu þeirra Þorbjargar Þorvaldsdóttur, verkefnastýru hjá Samtökunum '78, og Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins um svokallað bakslag í málefnum hinsegin fólks, sér í lagi trans fólks. Dóttir Guðrúnar er trans og hún hefur látið málefni trans fólks sig varða. Þar fór Snorri mikinn um „hugmyndafræði“ sem hefði grafið um sig í hreyfingu hinsegin fólks þar sem þess væri krafist að fólki trúði því að til væru fleiri en tvö kyn og að „líffræðilegir karlar“ ættu að fá að fara í kvennaklefa. Þetta væri róttæk breyting og skoða þyrfti meint bakslag í því samhengi. Fólk hefur keppst við að gagnrýna Snorra harðlega fyrir orðræðu hans og framkomu í gær og í dag. Biskup lætur vera að gagnrýna Snorra en beinir spjótum sínum frekar að Ríkisútvarpinu, fyrir að leyfa umræðunni að eiga sér stað á þessum degi. „Umræða sem þessi er ekki til þess gerð að vinna að forvörnum gegn sjálfsvígum. Allra síst á setningardegi forvarna gegn sjálfsvígum.“ Ríkisútvarpið Geðheilbrigði Þjóðkirkjan Hinsegin Miðflokkurinn Fjölmiðlar Tengdar fréttir „Þeir sem eru haldnir fordómum eiga ekki að koma nálægt opinberri stefnumótun“ Borgarstjórnarflokkur Framsóknar hyggst leggja til að borgarstjórn samþykki ályktun á fundi sínum í dag þar sem borgin harmi ummæli sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, lét falla í Kastljósi Ríkisútvarpsins í gær. Oddviti flokksins og fyrrverandi borgarstjóri segir fólk sem hafi uppi slík ummæli og viðhorf eigi ekkert erindi í stjórnmál. 2. september 2025 12:18 Fordæmir Snorra harðlega og segir hann gamaldags Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, fer hörðum orðum um málflutning Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um málefni hinsegin fólks og segir hann merki um bakslag í réttindabaráttu þeirra. 1. september 2025 23:41 Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Sjá meira
Gulur september hófst í gær en það er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, stakk niður penna hér á Vísi til þess að vekja athygli á verkefninu. Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is. Mun fleiri látast í sjálfsvígum en í umferðinni Biskup segir að á hverju ári deyi um fjörutíu manns í sjálfsvígum hér á landi, sem séu til dæmis mun fleiri en í bílslysum. Íslendingar séu stöðugt að auka öryggið í umferðinni til þess að koma í veg fyrir slys og andlát en því miður hafi okkur sem þjóð mistekist að nálgast öryggi geðheilbrigðis á sama hátt. „Verði flugslys, bílslys, sjóslys eða slys á vinnustað er það samkvæmt lögum rannsakað af rannsóknarnefndum umferðarslysa, flugslysa, sjóslysa eða vinnueftirlitinu. Rannsóknir þessar eru ekki sakamálarannsóknir heldur eru að öllu leyti til þess að læra af reynslunni og koma í veg fyrir að sams konar slys endurtaki sig. Þannig hefur okkur undanfarin ár tekist að stórauka öryggi í lofti, láði og legi. Þetta módel þurfum við nú að yfirfæra á dauðsföll sem rekja má til geðheilbrigðisvanda,“ segir hún. Skýrt að bæta þurfu öryggi geðheilbrigðis Sem þjónn í Þjóðkirkjunni hafi hún gengið með ótal mörgum fjölskyldum sem misst hafa ástvini í sjálfsvígi, auk þess sem hún hafi stutt fólk sem hefur verið í sjálfsvígshugleiðingum. Þá hef hafi hún sjálf misst náinn ástvin í sjálfsvígi. „Ég hef því, eins og aðrir þjónar Þjóðkirkjunnar, langa reynslu af því að vinna með bæði sjálfsvígsforvarnir og afleiðingar sjálfsvíga. Við í kirkjunni sjáum svo skýrt að það þarf að bæti öryggi geðheilbrigðis hér á landi.“ Ekki til þess fallið að fækka sjálfsvígum „Við verðum, sem samfélag, að taka okkur á þegar kemur að sjálfsvígsforvörnum og því vil ég hvetja öll félagasamtök, stofnanir, Alþingi Íslendinga, já öll þau sem láta sig náungann varða, til þess að taka þetta málefni upp á sína arma og láta sig geðheilsu íbúa þessa lands varða. Ég vona einnig að fjölmiðlar taki þátt í því.“ Það hafi því verið þó nokkur vonbrigði að sjá að áhersla Kastljóssins á Rúv, 1. september, hafi verið að ræða skoðanir fólks á tilvist eins ákveðins minnihlutahóps í samfélaginu sem nú berst fyrir tilverurétti sínum. Þar vísar hún til umræðu þeirra Þorbjargar Þorvaldsdóttur, verkefnastýru hjá Samtökunum '78, og Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins um svokallað bakslag í málefnum hinsegin fólks, sér í lagi trans fólks. Dóttir Guðrúnar er trans og hún hefur látið málefni trans fólks sig varða. Þar fór Snorri mikinn um „hugmyndafræði“ sem hefði grafið um sig í hreyfingu hinsegin fólks þar sem þess væri krafist að fólki trúði því að til væru fleiri en tvö kyn og að „líffræðilegir karlar“ ættu að fá að fara í kvennaklefa. Þetta væri róttæk breyting og skoða þyrfti meint bakslag í því samhengi. Fólk hefur keppst við að gagnrýna Snorra harðlega fyrir orðræðu hans og framkomu í gær og í dag. Biskup lætur vera að gagnrýna Snorra en beinir spjótum sínum frekar að Ríkisútvarpinu, fyrir að leyfa umræðunni að eiga sér stað á þessum degi. „Umræða sem þessi er ekki til þess gerð að vinna að forvörnum gegn sjálfsvígum. Allra síst á setningardegi forvarna gegn sjálfsvígum.“
Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Ríkisútvarpið Geðheilbrigði Þjóðkirkjan Hinsegin Miðflokkurinn Fjölmiðlar Tengdar fréttir „Þeir sem eru haldnir fordómum eiga ekki að koma nálægt opinberri stefnumótun“ Borgarstjórnarflokkur Framsóknar hyggst leggja til að borgarstjórn samþykki ályktun á fundi sínum í dag þar sem borgin harmi ummæli sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, lét falla í Kastljósi Ríkisútvarpsins í gær. Oddviti flokksins og fyrrverandi borgarstjóri segir fólk sem hafi uppi slík ummæli og viðhorf eigi ekkert erindi í stjórnmál. 2. september 2025 12:18 Fordæmir Snorra harðlega og segir hann gamaldags Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, fer hörðum orðum um málflutning Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um málefni hinsegin fólks og segir hann merki um bakslag í réttindabaráttu þeirra. 1. september 2025 23:41 Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Sjá meira
„Þeir sem eru haldnir fordómum eiga ekki að koma nálægt opinberri stefnumótun“ Borgarstjórnarflokkur Framsóknar hyggst leggja til að borgarstjórn samþykki ályktun á fundi sínum í dag þar sem borgin harmi ummæli sem Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, lét falla í Kastljósi Ríkisútvarpsins í gær. Oddviti flokksins og fyrrverandi borgarstjóri segir fólk sem hafi uppi slík ummæli og viðhorf eigi ekkert erindi í stjórnmál. 2. september 2025 12:18
Fordæmir Snorra harðlega og segir hann gamaldags Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, fer hörðum orðum um málflutning Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um málefni hinsegin fólks og segir hann merki um bakslag í réttindabaráttu þeirra. 1. september 2025 23:41