Með töskurnar fullar af marijúana Atli Ísleifsson skrifar 10. september 2025 07:56 Maðurinn og konan voru tekin í tollinum á Keflavíkurflugvelli eftir að þau komu til landsins með flugi 19. júlí síðastliðinn. Vísir/Jóhann K Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær karl og konu í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað rúmlega 38 kílóum af marijúana til landsins.
Þau voru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Karlinn og konan komu til landsins með flugi í júlí síðastliðinn og voru með efnin falin í farangurstöskum og segir í ákæru að í tösku annars þeirra hafi verið 18,5 kíló af marijúana en í tösku hins hafi verið 19,9 kíló. Var talið að efnin hafi verið ætluð til söludreifingar hér á landi og í ágóðaskyni. Við þingfestingu játuðu ákærðu sök í málinu og að um samverknað hafi verið að ræða. Í dómi segir að karlinn og konan hafi ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé og var litið til þess við ákvörðun refsingar, greiðrar játningar, auk þess að ekki verði ráðið af gögnum að þau hafi verið eigendur fíkniefnanna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Á hinn verði ekki fram hjá því litið að þótt karlinn og konan hafi gegnt hlutverki burðardýra sé ljóst að innflutningur fíkniefnanna í sölu-og hagnaðarskyni gæti ekki orðið að veruleika án þeirra þátttöku og horfi samverknaður þeirra óhjákvæmilega til refsiþyngingar. Dómari mat hæfilega refsingu vera fimmtán mánaða fangelsi, en til frádráttar kæmi gæsluvarðhald sem þau hafi verið í frá handtöku 19. júlí síðastliðinn. Þá voru efnin gerð upptæk, auk þess að þeim var gert að greiða hvoru um sig 1,3 milljónir króna til skipaðs verjanda. Auk þess er þeim gert að greiða rúmlega 200 þúsund krónur í sakarkostnað.
Dómsmál Smygl Fíkniefnabrot Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira