Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Komdu um jólin 28. september 2025 08:51 Með Birgittu sviðinu í Hörpu verða þau Salka Sól, Jónsi, Bergsveinn Arilíusson, Klara Einars og Gunni Óla en hann samdi íslenska textann og söng lagið Komdu um jólin. Birgitta Haukdal leiðir glæsilegan hóp söngvara fram á sviðið í Hörpu þann 5. desember á tónleikum sem hafa fengið nafnið „Komdu um jólin”. Skipuleggjanda tónleikanna fannst vanta stuð í jólatónleikaflóruna. Vantaði jólastuð í tónleikaflóruna „Mér fannst vera gat á markaðnum fyrir jólastuð þar sem við syngjum okkur hás og dönsum. Þess vegna erum við með þá 5. desember þannig að allir verði búnir að ná röddinni til baka fyrir jól,” segir Einar Bárðarson skipuleggjandi tónleikanna. „Efnisskráin samanstendur að mestu af stuð-jólalögum síðustu 40 ára, allt frá plötunni Jól alla daga til vel valdra ný-laga síðustu ára. Sum er ítölsk með íslenskum texta, önnur eftir íslensk alþýðuskáld en öll eru þau æði og koma okkur í rétta gírinn,” segir Einar. „Mér leist strax rosalega vel á þessa hugmynd og það er mikil tilhlökkun í hópnum fyrir þessu,” segir Birgitta Haukdal. „Við ætlum að skemmta okkur og um leið gestunum og eiga frábæra kvöldstund í Hörpu þetta kvöld og syngja uppáhalds jólastuðlögin okkar og kannski tvö róleg.” Með Birgittu á sviðinu verður stjörnufans, þau Salka Sól, Jónsi, Bergsveinn Arilíusson, Klara Einars og Gunni Óla en hann samdi íslenska textann og söng lagið Komdu um jólin með hljómsveitinni Skótamóral. Einar segir hafa legið beint við að fá Gunna Óla og Bergsvein í sönghópinn. „Ég á sjálfur nokkur jólalög sem heyrast alltaf fyrir jól þess vegna kallaði ég fyrst á Gunna Óla og Begga sem syngja þau,“ segir Einar. „Svo er ekki hægt að halda stuð jólatónleika án Jónsa og Birgittu. Salka Sól og Klara koma svo ungæðings elementin með inn í þetta. Við hlökkum alveg rosalega til og það var bara einn maður sem kom til greina sem tónlistarstjóri í þetta og það var hann Vignir Snær." Tvennir tónleikar fara fram 5. desember, þeir fyrri hefjast klukkan 18:00 og seinni klukkan 21:30Miðasala hefst 1. október kl. 12:00 á www.harpa.i. Miðaverð er frá 7.900 kr. til 14.900 kr. Hægt er að skrá sig á sérstakan forsölulista lista hér og þannig náð forskoti á almenna miðasölu sem hefst 1. október Jól Tónleikar á Íslandi Tónlist Menning Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Ástin það besta í heiminum Tónlist Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira
Vantaði jólastuð í tónleikaflóruna „Mér fannst vera gat á markaðnum fyrir jólastuð þar sem við syngjum okkur hás og dönsum. Þess vegna erum við með þá 5. desember þannig að allir verði búnir að ná röddinni til baka fyrir jól,” segir Einar Bárðarson skipuleggjandi tónleikanna. „Efnisskráin samanstendur að mestu af stuð-jólalögum síðustu 40 ára, allt frá plötunni Jól alla daga til vel valdra ný-laga síðustu ára. Sum er ítölsk með íslenskum texta, önnur eftir íslensk alþýðuskáld en öll eru þau æði og koma okkur í rétta gírinn,” segir Einar. „Mér leist strax rosalega vel á þessa hugmynd og það er mikil tilhlökkun í hópnum fyrir þessu,” segir Birgitta Haukdal. „Við ætlum að skemmta okkur og um leið gestunum og eiga frábæra kvöldstund í Hörpu þetta kvöld og syngja uppáhalds jólastuðlögin okkar og kannski tvö róleg.” Með Birgittu á sviðinu verður stjörnufans, þau Salka Sól, Jónsi, Bergsveinn Arilíusson, Klara Einars og Gunni Óla en hann samdi íslenska textann og söng lagið Komdu um jólin með hljómsveitinni Skótamóral. Einar segir hafa legið beint við að fá Gunna Óla og Bergsvein í sönghópinn. „Ég á sjálfur nokkur jólalög sem heyrast alltaf fyrir jól þess vegna kallaði ég fyrst á Gunna Óla og Begga sem syngja þau,“ segir Einar. „Svo er ekki hægt að halda stuð jólatónleika án Jónsa og Birgittu. Salka Sól og Klara koma svo ungæðings elementin með inn í þetta. Við hlökkum alveg rosalega til og það var bara einn maður sem kom til greina sem tónlistarstjóri í þetta og það var hann Vignir Snær." Tvennir tónleikar fara fram 5. desember, þeir fyrri hefjast klukkan 18:00 og seinni klukkan 21:30Miðasala hefst 1. október kl. 12:00 á www.harpa.i. Miðaverð er frá 7.900 kr. til 14.900 kr. Hægt er að skrá sig á sérstakan forsölulista lista hér og þannig náð forskoti á almenna miðasölu sem hefst 1. október
Tvennir tónleikar fara fram 5. desember, þeir fyrri hefjast klukkan 18:00 og seinni klukkan 21:30Miðasala hefst 1. október kl. 12:00 á www.harpa.i. Miðaverð er frá 7.900 kr. til 14.900 kr. Hægt er að skrá sig á sérstakan forsölulista lista hér og þannig náð forskoti á almenna miðasölu sem hefst 1. október
Jól Tónleikar á Íslandi Tónlist Menning Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Ástin það besta í heiminum Tónlist Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira