Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Jamboree Entertainment 16. október 2026 10:37 Boney M. með Liz Mitchell í broddi fylkingar stígur á svið ásamt Herberti Guðmundssyni í Eldborg. Þessir jólatónleikar verða öðruvísi og lofa frábærri skemmtun þar sem tvær tónlistarstjörnur koma saman í Hörpu þann 19. desember. Fram koma hin goðsagnakennda diskó hljómsveit Boney M. ásamt upprunalegu söngkonunni, Liz Mitchell, með fullskipaðri hljómsveit, auk einnar ástsælustu söngraddar Íslands, Herbert Guðmundssonar.
Boney M. mótaði alþjóðlegu tónlistarsenuna á áttunda og níunda áratugnum, með sinni einstakri blöndu af diskó-, reggí- og popptónlist, og er hún á meðal farsælustu diskóhljómsveita sögunnar. Með yfir 150 milljónir seldar plötur, smelli sem hafa slegið í gegn um allan heim og hljóm sem hafði áhrif á heilu kynslóðirnar, lyfti hljómsveitin diskó tónlist á nýjar hæðir og varð samnefnari fyrir gleði og skemmtun. Í broddi fylkingar er heimsfræg rödd Boney M., Liz Mitchell, sem stígur á svið í Hörpu ásamt 12 manna hljómsveit og bakraddarsöngvurum. Með kröftugri söngrödd færir hún einstaka orku og ástríðu inn í klassísk lög eins og Rivers of Babylon, Daddy Cool, Rasputin, Ma Baker, Sunny, Hooray! Hooray! It's a Holi-Holiday og Mary’s Boy Child / Oh My Lord. „Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Boney M í Hörpu yfir hátíðirnar, með upprunalegu söngkonuna Liz Mitchell í fararbroddi,“ segir James Cundall, framleiðandi og framkvæmdastjóri Jamboree Entertainment. „Grípandi og skemmtileg lög hljómsveitarinnar einkenndu heilt tímabil og munu án efa fá allan salinn til að syngja og dansa. Ásamt fullskipaðri hljómsveit mun þessi kraftmikli hópur töfra fram hinn eina sanna og smitandi Boney M-hljóm. Það verður mikið um skemmtun og algjört stuð, sem smellpassar fyrir jólagleðina," segir James Cundall. Tónleikarnir hefjast á innslagi frá einni lífseigustu rokkstjörnu Íslands, Herberti Guðmundssyni, sem kemur fram í fyrsta skipti í Eldborgarsal Hörpu ásamt fimm manna hljómsveit sinni sem er skipuð úrvals tónlistarmönnum. Eins og flestir Íslendingar vita er Herbert hæfileikaríkur og reynslumikill tónlistarmaður sem hefur með krafti sínum og sérstöku rödd heillað áheyrendur í hálfa öld. Þarna gefst tækifæri til að upplifa aftur þekkt lög með goðsögninni eins og Með stjörnunum, Can't Walk Away, Í þér býr það besta, Hollywood, Time, Svaraðu og I Follow You. Íslendingar ættu sannarlega að búa sig undir skemmtilega jólaveislu. Jólatónleikarnir með Boney M, undir forystu Liz Mitchell ásamt Herbert Guðmundssyni, verða haldnir aðeins eitt kvöld. Tónleikarnir fara fram í Eldborg í Hörpu, laugardaginn 19. desember kl. 20:00. Miðaverð er frá 6.990 kr. til 22.990 kr. og er miðasala þegar hafin á harpa.is og tix.is. Breska fyrirtækið Jamboree Entertainment stendur að baki tónleikunum, en það hefur staðið fyrir fjölda glæsilegra viðburða í Hörpu á árinu 2026. Þar má helst nefna sýningar á borð við The Legend of Springsteen, The Ultimate Eagles, The Definitive Rat Pack, Emilio Santoro as Elvis og Mania: The ABBA Tribute. Næst á dagskrá hjá fyrirtækinu er koma hins heimsþekkta óperusöngvara Sir Bryn Terfel til landsins þann 10. október og því næst sýningin Celebrating George Michael þann 21. nóvember. Árið 2027 verður svo ekki af lakara taginu, en von er á mörgum öðrum spennandi alþjóðlegum listamönnum til landsins á þeirra vegum.
Menning Tónlist Jólalög Jól Tónleikar á Íslandi Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Sjá meira