Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. september 2025 15:00 Play bauð upp á ferðir til Marrakesh í Marokkó sem fjölmargir Íslendingar nýttu sér undanfarið ár. Hér er fyrsta fluginu fagnað í Afríku. Ekkert beint flug er lengur í boði til Marrakesh frá Íslandi. Play Miðað við nýlega flugáætlun Play fyrir næsta árið hefði félagið verið með tæplega sex prósent af öllum flugsætum til og frá Keflavíkurflugvelli næsta árið hefði félagið ekki farið í þrot. Þrátt fyrir helmingi minna umfang hefði flugfélagið áfram verið næststærsti viðskiptavinur Isavia á eftir Icelandair sem er með 65 prósent flugsæta.
Play tilkynnti í gær að félagið hefði hætt starfsemi og væri á leið í gjaldþrotameðferð. Beiðni um gjaldþrot var lögð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia átti Play um tólf prósent af framboði til og frá Keflavíkurflugvelli í september. Í skriflegu svari frá Isavia kemur fram að ef horft er á tímabilið frá október 2025 til og með ágúst 2026 þá var Play með 5,8% af öllum flugsætum í sölu miðað við þá áætlun sem félagið gaf út fyrir nokkrum mánuðum. „Það hlutfall hefði vissulega getað lækkað ef önnur félög hefðu aukið við framboð sitt t.d. á sumaráætlun 2026 en þær áætlanir eru tilbúnar í desember næstkomandi. Play hefði því, þrátt fyrir breytta viðskiptalíkan verið næststærsti viðskiptavinur okkar en ekki langt frá félögum á borð við easyJet og Wizz,“ segir Guðjón. Play var með 21 áfangastað í áætlun sinni og þar af níu áfangastaði sem ekkert annað flugfélag flýgur til frá Íslandi í október. Áfangastaðirnir eru Antalya í Tyrklandi, Faro, Funchal og Porto í Portúgal, Liverpool á Englandi, Madrid á Spáni, Marrakech í Marokkó, Split í Króatíu og Vilníus í Litháen. Guðjón segir Isavia eiga í góðu samtali við flugfélög sem fljúga um KEF um hvort þau stígi inn þar sem Play var að fljúga. Viðbætur í þá átt yrðu þó væntanlega ekki fyrr en næsta sumar.
Play Gjaldþrot Play Icelandair Isavia Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Sjá meira