Centro-hjónin selja Beverly Hills-villuna Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 2. október 2025 13:56 Húsið er byggt árið 1985 í anda Beverly Hills. Hjónin, Vilborg Jóhannsdóttir og Úlfar Gunnarsson, eigendur tískuvöruverslunarinnar Centro, hafa sett tæplega fimm hundruð fermetra einbýlishús sitt við Helgamagrastæti á Akureyri á sölu. Um er að ræða eitt glæsilegasta hús bæjarins, reist árið 1985. Ásett verð er 259,5 milljónir.
Húsið er sérstakt fyrir margar sakir og minnir í raun frekar á eign í Beverly Hills í Bandaríkjunum en hefðbundið heimili á Íslandi. Úlfar reisti það sjálfur á sínum tíma og hugaði vandlega að hverju smáatriði með innblástur úr vinsælu sjónvarpsþáttunum Dallas. Fjölmiðlamaðurinn Sindri Sindrason heimsótti Úlfar í sjónvarpsþættinum Heimsókn árið 2022, þar sem hann kynnti sér sögu hússins og hönnun þess. Klippu úr þættinum má sjá hér að neðan. Lúxusvilla með partýhúsi Húsið er 428 fermetrar, þar af 51 fermetra tvöfaldur bílskúr, og stendur á þremur hæðum. Við hlið hússins er sérhannað partýhús með innandyra heitum potti, auk líkamsræktar- og hobbýherbergis. Aðalhæðin skiptist í hol, snyrtingu, stofu og borðstofu, sjónvarpsstofu, eldhús og þvottahús. Glæsilegur stigi liggur upp á efri hæðina. Útgengi er á verandir á fleiri en einum stað og steyptur pallur liggur austan- og sunnanmegin við húsið. Flísar eru á öllum gólfum. Á efri hæðinni er hjónaherbergi með fataherbergi, sérbaðherbergi og útgengi á stórar svalir. Þar eru einnig tvö barnaherbergi og rúmgott baðherbergi. Í kjallara er fullbúin 120 fermetra íbúð með sérinngangi. Í heildina telur eignin sjö svefnherbergi og fjögur baðherbergi. Nánari upplýsingar um eignina má nálgast á fasteignavef Vísis.
Akureyri Fasteignamarkaður Hús og heimili Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Sjá meira