Hæg breytileg átt og dálítil væta Lovísa Arnardóttir skrifar 16. október 2025 08:19 Það má búast við einhverri vætu í dag. Vísir/Anton Brink Hæð er yfir bæði Grænlandi og Bretlandi og milli þeirra er hæðarhryggur, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Hann segir að líkt og gjarnan fylgi háum loftþrýstingi sé hægur vindur á landinu en suðvestan fimm til tíu metrar á sekúndu á bæði Vestfjörðum og Ströndum. Vestan- og sunnanlands blási röku lofti af hafi og því verður skýjað og víða súld þar, en norðan- og austantil er að mestu leyti léttskýjað.
Á morgun má samkvæmt hugleiðingum búast við vestlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu á norðvestanverðu landinu. Áfram á að vera skýjað vestantil en yfirleitt þurrt en bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti verður líklega sex til ellefu stig um daginn en svalara um nótt og líklegt að hiti falli niður fyrir frostmark þar sem bjart verður. Nokkuð greiðfært er um landið samkvæmt vef Vegagerðar en þó eru einhverjir vegir á Vestfjörðum ófærir eða lokaðir og framkvæmdir víða á Suðurlandi. Lítið er vitað um aðstæður á hálendi. Nánari upplýsingar um færð er að finna á vef Vegagerðar og um veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum, en þokuloft eða súld á norðanverðu landinu og við suðurströndina. Hiti 2 til 10 stig. Á sunnudag: Hæg breytileg átt, en norðaustan 5-10 m/s suðaustanlands. Skýjað að mestu og stöku skúrir. Hiti 1 til 8 stig. Á mánudag: Ákveðin norðaustanátt og éljagangur norðvestantil, annars hægari og dálitlar skúrir eða slydduél og kólnandi veður. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir áframhaldandi norðlægar áttir með éljum og svölu veðri, en lengst af bjartviðri suðvestanlands.
Veður Færð á vegum Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Sjá meira