Skipti bús Magnúsar tekin upp sextán árum frá þroti Árni Sæberg skrifar 21. október 2025 11:40 Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Pacta lögmanna í Hafnarstræti á Akureyri. Vísir/tryggvi Páll Skiptastjóri þrotabús Magnúsar Þorsteinssonar, sem var meðal þeirra sem keypti Landsbankann fyrir hrun, hefur boðað til skiptafundar þar sem viðbótarúthlutunargerð úr búinu verður rædd. Magnús varð gjaldþrota árið 2009 og skiptum í búi hans lauk árið 2017.
Í auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í gær segir að með úrskurði Héraðsdóms Norðurlands eystra uppkveðnum 4. maí 2009, hafi bú Magnúsar Þorsteinssonar verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptum hafi lokið þann 20. mars 2017. Skiptin hafi nú verið endurupptekin samkvæmt ákvæði laga um gjaldþrotaskipti og fleira um endurupptöku. Andmælafrestur til 3. nóvember Þar segir að hafi skiptum verið lokið án tillits til eignar sem búið gat þá ekki ráðið yfir skuli skiptastjóri tafarlaust og ótilkvaddur taka skiptin upp á ný ef eignin stendur búinu til ráðstöfunar. Þegar henni hafi eftir atvikum verið komið í verð skuli skiptastjóri gera frumvarp til viðbótarúthlutunar. Í auglýsingunni segir að skiptafundur til að fjalla um frumvarp að viðbótarúthlutunargerð úr búinu verði haldinn á skrifstofu skiptastjóra þann 3. nóvember. Komi ekki í síðasta lagi á þeim fundi fram andmæli við frumvarpinu muni það lagt óbreytt til grundvallar sem úthlutunargerð. Frumvarp að viðbótarúthlutunargerð muni liggja frammi á skrifstofu skiptastjóra síðustu tvær vikurnar fyrir skiptafundinn. Getur ekkert sagt Sigmundur Guðmundsson, skiptastjóri þrotabúsins, segir í samtali við Vísi að hann geti ekkert sagt til um ástæður þess að skiptin voru tekin upp. Það muni hann í fyrsta lagi geta gert eftir skiptafundinn. Skiptin tóku upphaflega tæplega átta ár og samþykktar kröfur í þrotabúið námu alls 24,5 milljörðum. Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki krafðist þess að bú Magnúsar yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Ástæðan fyrir gjaldþrotakröfunni var sú að fjárfestingafélagið BOM ehf tók tæplega tólf hundruð milljón króna lán til þess að kaupa hlut í Icelandic Group. Lánið var veitt árið 2005. Upprunalegir lántakendur voru þeir Baldur Guðnason og Steingrímur H. Pétursson, eigendur Sjafnar. Árið 2007 keypti Magnús BOM og skrifaði undir sjálfskuldarábyrgð upp á 930 milljónir króna. Athygli vakti að Magnús breytti um lögheimili rétt áður en mál hans var dómtekið á Akureyri og fluttist til Rússlands. Þvertók hann þó fyrir að tengsl væru á milli þess og dómsmálsins. Magnús var áberandi í viðskiptalífinu hér á landi á árunum fyrir hrun. Magnús var stjórnarformaður og aðaleigandi Avion Group sem átti meðal annars Air Atlanta. Þá keypti hann Landsbankann ásamt Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgúlfssyni.
Hrunið Gjaldþrot Akureyri Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira