Fleiri stöðugildi sjúkraþjálfara muni fara í skriffinnsku Lovísa Arnardóttir skrifar 21. október 2025 22:31 Gunnlaugur Briem, sjúkraþjálfari og varaformaður BHM. vísir/vilhelm Félag sjúkraþjálfara fagnar því í yfirlýsingu að afnumin hafi verið tilvísanaskylda fyrir þjónustu sjúkraþjálfara en telur að í útfærslunni sem kynnt var af ráðuneytinu sé verið að færa vinnu vegna tilvísanna frá læknum á sjúkraþjálfara.
Í yfirlýsingu frá félaginu segir að Félag sjúkraþjálfara, fulltrúar Sjúkratrygginga og heilbrigðisráðuneytisins hafi unnið að því um nokkurt skeið að útbúa tillögur sem myndu leiða til minni sóunar, skapa skilvirka ferla og bæta umgjörð þessara mála fyrir þjónustuveitendur sem og almenna notendur þjónustunnar. „ Við teljum að sú útfærsla sem tilkynnt var um í fjölmiðlum í gær (20.10.2025), sé ekki með þeim hætti að hún nái þeim markmiðum sem stefnt hefur verið að í þessari mikilvægu vinnu,“ segir í yfirlýsingunni. Tillagan feli í sér að sjúkraþjálfarar þurfi að senda umsókn um framhaldsmeðferð þurfi fólk fleiri en sex meðferðarskipti. Með þessu sé verið að færa verkefni lækna, sem hafi hingað til séð um tilvísanir, til sjúkraþjálfara og því muni fleiri stöðugildi sjúkraþjálfara fara í þessa vinnu. Félagið telur mikil tækifæri í að minnka sóun og að tíma heilbrigðisstarfsfólks sé betur varið í beinni þjónustu við skjólstæðingar. Villandi mynd af kostnaði Þá segir félagið villandi mynd af kostnaði og þróun kostnaðar í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins um þessa breytingu. Þar komi fram að kostnaður við sjúkraþjálfun stefni í að verða 2,5 milljarðar umfram fjárheimildir en miðað við þær forsendur sem félagið hafi fengið frá SÍ megi áætla að notkun umfram áætlanir nemi um 7,5 prósent og að kostnaður hins opinbera ætti ekki að vera meiri en 700 milljónir vegna þess. „Félag sjúkraþjálfara hefur ítrekað bent á að áætluð þörf fyrir þjónustuna sé vanmetin, enda séu áhrif af 5 ára samningaleysi nokkur, sem leiddi til hærri kostnaðar almennings og skerts aðgengis að þjónustunni. Auk þess sem áætlunin taki ekki nægilegt tillit til magnaukningar og aldurssamsetningar þjóðarinnar. Virðist sem þessar ábendingar hafi verið réttar og að búast hafi mátt við aukinni þjónustuþörf þegar aðgengi að þjónustunni var loks bætt með gerð samninga,“ segir í yfirlýsingunni og að það sé mat félagsins að engin merki séu um óeðlilega notkun á nýgerðum samningi við þá og að það virðist sem hann hafi jákvæð áhrif á þróun þjónustunnar. Komum séu í samræmi við væntingar. Þá segir félagið það heldur ekki rétt sem kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins að meðferðarskiptafjöldi einstaklinga hafi aukist. Þvert á móti hafi skiptunum farið fækkandi. Fjöldinn hafi verið mestur árið 2021 í miðjum heimsfaraldri Covid. „…má ætla að sá hópur sem hafi sótt þjónustu á þeim tíma hafi verið þeir sem veikastir voru og því verið í mikilli þörf fyrir þjónustuna. Einnig þarf að horfa til þess að sjúkraþjálfun var sú þjónusta sem var opin meðan á faraldrinum stóð á sama tíma og önnur bjargráð voru ekki aðgengileg. Þá er mikilvægt að geta þess að meðal meðferðarskiptafjöldi er mismikill eftir réttindastöðu einstaklinga, t.a.m. meðal örorkulífeyrisþega, ellilífeyrisþega, almennra og barna,“ segir í yfirlýsingunni. „Í ljósi misvísandi upplýsinga sem fram komu í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins teljum við mikilvægt að almenningur sé upplýstur um sjónarmið félagsins og teljum að stjórnvöld hefðu átt að ljúka útfærslu áætlunar sinnar í samstarfi við Félag sjúkraþjálfara. Slíkt hefði undirstrikað mikilvægi vinnunnar og leitt til farsællar niðurstöðu,“ segir að lokum.
Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira