Ráðin framkvæmdastýra Ljósleiðarans Atli Ísleifsson skrifar 11. nóvember 2025 12:30 Þuríður Björg Guðnadóttir. Stjórn Ljósleiðarans hefur ráðið Þuríði Björgu Guðnadóttur í starf framkvæmdastýru félagsins. Hún tekur við starfinu af Einari Þórarinssyni sem hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Ljósleiðarans síðustu ár.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Orkuveitunni. Þar kemur frma að Þuríður sé vel kunnug fjarskiptum en hún komi til félagsins eftir áralangan og farsælan feril hjá fjarskiptafélaginu Nova. „Hún hefur verið hluti af uppbyggingu og þróun fyrirtækisins allt frá stofnun þess og hefur setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2017. Þuríður situr í stjórn VÍS trygginga og sat áður í stjórn Lyfju. Hún er með BS-gráðu í rekstrarverkfræði og hefur lokið námi í Executive Coaching frá Háskólanum í Reykjavík.“ Haft er eftir Dagnýju Hrönn Pétursdóttur, stjórnarformanni Ljósleiðarans, að stjórnin fagni því að fá Þuríði til liðs við Ljósleiðarann á þessum spennandi tímum. „Hún kemur með mikla reynslu af fjarskiptum, þjónustu og vörumerkjastjórnun, auk þess sem hún hefur einstaka hæfileika til að byggja upp öfluga þjónustumenningu og hvetjandi starfsanda. Ljósleiðarinn gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu öruggra og háhraða innviða fyrir íslenskt samfélag og með Þuríði við stjórnvölinn styrkjum við enn frekar stöðu okkar á þeim vettvangi,“ segir Dagný Hrönn. Þá er haft eftir Þuríði Björg sjálfri að Ljósleiðarinn hafi byggt upp þjónustu og innviði sem skipti samfélagið miklu máli og hlakki hún til að taka þátt í þeirri vegferð. „Fyrirtækið er í lykilstöðu þegar kemur að framtíðaruppbyggingu innviða á Íslandi og ég sé mikla möguleika í því að efla tengsl við viðskiptavini, samstarfsaðila og eigendur. Ég tek við keflinu af Einari með mikilli virðingu fyrir því góða starfi sem hann hefur leitt, og hlakka til að vinna að þeim mikilvægu verkefnum sem eru framundan með kraftmiklum hópi starfsfólks Ljósleiðarans,“ segir Þuríður Björg.
Vistaskipti Fjarskipti Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira