Breski raðnauðgarinn fær enn einn lífstíðardóminn Samúel Karl Ólason skrifar 20. nóvember 2025 12:00 David Carrick, einn alræmdasti kynferðisbrotamaður Bretlands, starfaði um árabil hjá lögreglunni og er sagður hafa notað sér það við brot sín. EPA/ANDY RAIN David Carrick, breski raðnauðgarinn og fyrrverandi lögreglumaðurinn, hefur fengið enn einn lífstíðardóminn. Að þessu sinni var hann dæmdur fyrir að brjóta á tólf ára stúlku og fyrrverandi kærustu. Hinn fimmtugi síbrotamaður fékk í kjölfarið sinn 37. lífstíðardóm en hann hefur áður verið dæmdur fyrir að brjóta á tólf konum yfir sautján ára tímabil.
Carrick var dæmdur á nýjan leik í Lundúnum í morgun. Það var eftir réttarhöld gegn honum fyrir að brjóta ítrekað á tólf ára stúlku árin 1989 og 1990 og fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu sinni rúmlega tuttugu árum síðar. Samkvæmt tilkynningu frá saksóknurum stigu báðanar konurnar fram eftir að Carrick var dæmdur árið 2023. Þá var hann dæmdur í að minnsta kosti 32 ára fangelsi. Þau réttarhöld reiddu Breta til mikillar reiði þar sem í ljós kom að mörg tækifæri til að stöðva ítrekuð brot hans í gegnum árin voru misnotuð en hann starfaði lengi sem lögregluþjónn, eða frá árinu 2001. Yfirmenn hans í lögreglunni voru sagðir hafa fengið upplýsingar um nokkur meint brot hans fram til ársins 2021 en aldrei viðhafst neitt vegna þeirra ábendinga. Hann játaði á sig, í tveimur mismunandi málaferlum, að hafa framið 71 kynferðisbrot, þar af 48 nauðganir, á tólf konum yfir sautján ára tímabil, samkvæmt frétt Sky News. Carrick hefur starfað innan lífvarðarsveitar lögreglunnar, sem vörður og lífvörður. Saksóknarar sökuðu hann um að nýta stöðu sína sem lögregluþjónn gegn konum sem hann kynntist á internetinu og þvinga þær til samræðis og til þess að þaga um nauðganirnar. Wayne Couzens, sem játaði árið 2021 að hafa nauðgað og myrt Söruh Everard, starfaði í sömu deild lögreglunnar. Sjá einnig: Morðingi Söruh Everard dæmdur í lífstíðarfangelsi Carrick mun hafa læst konur inn í skáp undir stiga á heimili hans í margar klukkustundir og þvingað þær til að þrífa heimili hans naktar. Hann barði eina konu með belti, pissaði þá nokkur af fórnarlömbum sínum og réð því hvenær þær fengu að borða og sofa. Konurnar kallaði hann einnig feitar og latar og stjórnaði þeim með harðri hendi. Hann einangraði þær frá fjölskyldu þeirra og vinum og bannaði þeim að tala við aðra menn eða jafnvel börn þeirra.
Bretland England Erlend sakamál Kynferðisofbeldi Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira