80% nemenda á Laugarvatni eru í kór menntaskólans Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. nóvember 2025 20:04 119 nemendur skólans eru í kórnum eða um 80% nemenda. Magnús Hlynur Hreiðarsson Sjaldan eða aldrei hafa nemendur Menntaskólans að Laugarvatni hafi eins mikinn áhuga á að syngja í kór skólans eins og núna því 119 nemendur af 152 nemendum skólans eru í kórnum.
Það er rík hefð fyrir kór í Menntaskólanum að Laugarvatni, sem hefur komið fram í gegnum árin við allskonar tækifæri. Kórinn er alltaf mjög vinsæll hjá nemendum en aldrei jafn vinsæll og nú því næstum allir nemendur skólans er í kórnum en skólinn er heimavistar skóli. „Kórinn er náttúruleg stolt okkar hérna í Menntaskólanum að Laugarvatni og fyrir 15 árum síðan fengum við kórstjórnenda, sem hætti vor, hana Eyrúnu Jónasdóttur og hún á svolítin veg og vanda af uppbyggingunni, sem hefur endað í því að við erum með 120 manna kór,“ segir Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari. Stjórnandi kórsins, sem tók við honum í haust er Stefán Þorleifsson. „Og hann fékk það verkefni að reyna kannski að vera örlítið leiðinlegur í haust á kynningum og koma kórnum, drauma talan var 67 því það er stærsta rútan hjá Gvendi Tyrfings en það tókst ekki. Hann fór úr 120 manns í 119,“ segir Jóna Katrín hlæjandi. Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni, sem er að vonum mjög montinn og ánægð með kór skólans.Magnús Hlynur Hreiðarsson Hvað er þetta stórt hlutfall nemenda? „Þetta er núna um 80% nemenda en við erum með 156 nemendur í skólanum.“ Þetta er ótrúlega flottur og skemmtilegur kór, ertu ekki sammála því? „Já og svona ungar og bjartar raddir, þær eru á einhverju öðru leveli, á einhverju öðru sviði,“ segir skólameistarinn. Það stendur mikið til hjá kórnum því það eru tónleikar framundan í Skálholtskirkju en kórinn verður með tvenna jólatónleika í Skálholti um helgina og skólameistarinn, segir magnað að hlusta á kórinn í kirkjunni. „Og það er alveg dásamlegt að fara í Skálholt rétt fyrir jólin og heyra kórinn syngja í hæstu hæðum þar enda stórkostlegt sönghús“, segir Jóna Katrín. Stjórnandi kórsins er Stefán Þorleifsson, en hann tók við honum í haust.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Bláskógabyggð Framhaldsskólar Kórar Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist Fleiri fréttir Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Sjá meira