Norðmenn og Danir kláruðu sitt en Svíar klikkuðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2025 21:03 Nora Mörk var markahæst í norska landsliðinu í kvöld. EPA/Beate Oma Dahle Noregur og Danmörk tryggðu sér efsta sætið í sínum riðli með sigri í lokaumferðinni í riðlakeppni HM kvenna í handbolta í kvöld. Svíar gátu gert hið sama en töpuðu á móti Brasilíu.
Norska landsliðið átti ekki í miklum vandræðum með Angóla og vann á endanum með tólf marka mun, 31-19, eftir að hafa verið 19-10 yfir í hálfleik. Noregur, sem er á fyrsta stórmóti sínu í langan tíma án Þóris Hergeirssonar, vann alla þrjá leiki sína í riðlinum með samtals 52 mörkum eða með 17,3 mörkum að meðaltali í leik. Nora Mörk var markahæst með sex mörk en Henny Reistad skoraði fimm mörk. Katrine Lund varði tíu skot eða fimmtíu prósent skota sem á hana komu. Danir unnu á sama tíma átta marka sigur á Rúmeníu, 39-31, en þetta var hreinn úrslitaleikur um sigur í riðlinum. Danir voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 21-18, en þær rúmensku voru komnar yfir í byrjun seinni. Þá gaf danska liðið í og kláraði leikinn sannfærandi. Það var mun meiri spenna í leik Svíþjóðar og Brasilíu en þær brasilísku unnu á endanum fjögurra marka sigur, 31-27. Svíar komust mest fjórum mörkum yfir í fyrri hálfleiknum og voru 16-15 yfir í hálfleik. Þær brasilísku voru sterkari í seinni hálfleiknum. Sigurinn þýðir að Brasilía vinnur leikinn og riðilinn og tekur með sér fjögur stig inn í milliriðilinn. Sömu sögu er að segja af Noregi og Danmörku. Ungverjar tryggðu sér síðan sigur í sínum riðli með sannfærandi sjö marka sigri á Sviss 32-25. Sviss var reyndar einu marki yfir í hálfleik, 14-13, en þær ungversku keyrðu yfir þær í þeim seinni, sem þær unnu 19-11.
HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira