Fótbolti

„Hann brást hrapal­lega sem manneskja“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar fékk rautt spjald fyrir að hylja munninn þegar hann talaði við mótherja.
Neymar fékk rautt spjald fyrir að hylja munninn þegar hann talaði við mótherja. Getty/Marco Miatelo

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar fékk beint rautt spjald í brasilísku deildinni á laugardagskvöld.

Stjarna Santos huldi munninn með hendinni þegar hann reifst við Rodrigo Nestor, leikmann Bahia, í 1-0 sigri liðs síns í brasilísku deildinni. Nestor vakti athygli dómarans á því sem gaf Neymar rautt spjald.

Rauð spjöld fyrir leikmenn sem hylja munninn á meðan þeir tala við mótherja voru samþykkt fyrir HM eftir að Vinícius, leikmaður Real Madrid, sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu Gianluca Prestianni, leikmanns Benfica, á síðasta tímabili í Meistaradeildinni. Prestianni var síðar dæmdur í sex leikja bann.

Vorum bara að spjalla

„Við vorum bara að spjalla á miðjum vellinum, grínast og hlæja saman,“ sagði Neymar.

„Svo fór ég að tala við Nestor, það var rangt af mér að setja höndina fyrir munninn, vissulega, en ég var ekki einu sinni búinn að segja neitt þegar hann rétti upp höndina. Þetta er eitt skítlegasta bragðið í fótboltanum! En ég næ mér niðri á Nestor á endanum,“ sagði Neymar.

Nestor hafði líka sitt að segja: „Þetta var bara venjulegt brot í leiknum. Ég rétti fram höndina til að taka í höndina á honum og hann kastaði boltanum í mig. Eftir það sagði hann ýmislegt við mig,“ sagði Nestor.

Hann veit hvað hann sagði við mig

„Hann veit hvað hann sagði við mig. Það var mikil vanvirðing – bæði gagnvart mér og gagnvart treyju Bahia. Þótt hann sé kannski átrúnaðargoð allra sem leikmaður brást hann í dag – hann brást hrapallega sem manneskja – vegna þess hvernig hann talaði. Maður á ekki að gera svona lagað,“ sagði Nestor.

„Ég lærði mikið af móður minni og föður og er þakklátur fyrir uppeldið sem þau veittu mér. Ég myndi aldrei gera neitt þessu líkt,“ sagði Nestor.

Síðar skrifaði Neymar á samfélagsmiðlum: „Ég er ekki vanur að tala mikið um það sem gerist í leikjum – sérstaklega þegar þetta eru bara orðaskipti milli leikmanna. Ég var líka rekinn af velli og ég velti mér venjulega ekki upp úr svona hlutum, en í dag held ég að þetta hafi verið mjög alvarlegt. Þetta fór út fyrir það sem eðlilegt er, skiljiði?“ skrifaði Neymar.

Ég blóta fólki, ég berst, ég rífst

„Ég ver þetta merki – ég myndi gefa líf mitt fyrir það. Ég blóta fólki, ég berst, ég rífst – það er allt í lagi; það verður eftir á vellinum. Þetta er fótbolti – svona er þetta bara. Og vissulega þarf hann líka að verja sitt lið,“ skrifaði Neymar.

Neymar sakaði Nestor um að setja á svið leikþátt og varaði við því að reglan um að reka leikmenn af velli fyrir að hylja munninn gæti ýtt undir „undirferli“ leikmanna.

Það sem hann gerði er mjög alvarlegt

„Það sem Nestor gerði mér í dag er að mínu mati gríðarlega alvarlegt. Það er alvarlegt vegna þess að það eru lög gegn kynþáttafordómum og hann reyndi að ná forskoti í leiknum með því að halda því fram að ég hefði sagt eitthvað – þótt ég hafi haft höndina fyrir munninum og ekki sagt orð við hann. Auðvitað vorum við að skiptast á móðgunum – að skjóta hvor á annan – og það er í lagi; það er hluti af leiknum. En það sem hann gerði er mjög alvarlegt,“ skrifaði Neymar.

„Við vorum bara að fíflast – ég var að grínast við miðverðina tvo – og hann notaði það til að reyna að ná forskoti. Það er mjög alvarlegt. Það eru lög gegn kynþáttafordómum – hvernig gat hann gert eitthvað svona? Þetta er súrrealískt. Ég er mjög sorgmæddur yfir því sem gerðist, því hann var undirförull,“ skrifaði Neymar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×