Ótrúlegur viðsnúningur Íslandsbananna gegn Spáni Valur Páll Eiríksson skrifar 2. desember 2025 16:07 Serbar gerðu frábærlega á lokakafla leiksins og unnu sterkan sigur. Federico Gambarini/picture alliance via Getty Images Serbía vann 31-29 sigur á Spáni í milliriðli íslenska landsliðsins í Dortmund á HM kvenna í handbolta. Spánn leiddi með sex marka mun um miðjan síðari hálfleik en ótrúlegur viðsnúningur setti Serba í lykilstöðu í riðlinum.
Serbar lögðu íslenska liðið með minnsta mun á föstudaginn var. Þökk sé þeim sigri tóku þær serbnesku tvö stig með sér í milliriðilinn og var jafnt Spáni, Færeyjum og Svartfellingum fyrir leik dagsins. Keppst var því um að jafna Þjóðverja að stigum í efsta sæti riðilsins. Úr var jafn leikur þar sem þær spænsku voru þó skrefi á undan frá upphafi. Munurinn var tvö mörk lengst af og eftir drjúga markaskorun liðanna var staðan 19-17 fyrir Spán í hálfleik. Þær spænsku byrjuðu síðari hálfleikinn betur. Þær skoruðu fyrstu fjögur mörk hálfleiksins til að komast í 23-17 og gerðu þá gott sem út um leikinn. Það var hreint ekki svo. Serbar lokuðu vörninni og náðu 8-1 kafla til að snúa stöðunni úr 26-20 fyrir Spán í 28-27 sér í vil. Eftir það tóku við æsispennandi lokamínútur en þegar 30 sekúndur voru eftir náðu þær serbnesku tveggja marka forystu í fyrsta sinn í leiknum, 31-29, sem urðu lokatölur eftir hreint ótrúlegan viðsnúning. Serbar eru því með fjögur stig á toppi riðilsins, líkt og Þjóðverjar. Spánn, Svartfjallaland og Færeyjar eru með tvö en Ísland án stiga. Ísland og Svartfjallaland eigast við í riðlinum klukkan 17:00. Þeim leik verður lýst beint hér á Vísi.
HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira