Enski boltinn

Slot: „Hef ekki hug­mynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arne Slot þurfti að svara mörgum spurningum um Mohamed Salah á blaðamannafundi í kvöld.
Arne Slot þurfti að svara mörgum spurningum um Mohamed Salah á blaðamannafundi í kvöld. getty/Andrew Powell

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, kveðst ekki vita hvort Mohamed Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.

Slot sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Mílanó í kvöld. Liverpool mætir Inter á San Siro í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Eftir 3-3 jafnteflið við Leeds United á laugardaginn ræddi Salah við fjölmiðla og lýsti yfir óánægju með stöðu sína hjá Liverpool. Hann kvaðst hafa verið gerður að blóraböggli og samband þeirra Slots væri ekki lengur til staðar.

Flestar þeirra spurninga sem Slot fékk á blaðamannafundinum í kvöld sneru að Salah sem fór ekki með Liverpool-liðinu til Mílanó.

„Sá eini sem getur svarað því er Mo sjálfur. Ég get giskað en ég held að það sé ekki rétt á þessum tíma. Það er erfitt fyrir mig að vita við hvern hann átti í þessari stöðu,“ sagði Slot aðspurður hvort Egyptinn hefði átt við hann þegar hann sagði að honum hefði verið kastað fyrir rútuna. Sjá má blaðamannafund Slots hér fyrir neðan.

„Fyrir laugardaginn töluðum við mikið saman. Stundum lengur og stundum skemur,“ sagði Slot. Hollendingurinn var svo spurður hvort samband þeirra Salahs væri ekki lengur til staðar.

Ummælin komu á óvart

„Mér líður ekki þannig en hann á rétt á sinni upplifun. Mér líður alls ekki þannig, allavega ekki fyrir laugardaginn. Þegar ég nota ekki leikmenn eru þeir ekki svo hrifnir af stjóranum. En hann sýndi starfsliðinu og samherjum sínum mikla virðingu og æfði af krafti,“ sagði Slot.

„Að nokkru leyti komu ummæli hans mér á óvart. En þetta er ekki í fyrsta og ekki síðasta skiptið sem leikmaður segir eitthvað svona. Mín viðbrögð við þessu eru augljós og þau eru að hann er ekki með okkur hér.“

Leikmenn geta alltaf snúið aftur

Næsti deildarleikur Liverpool er gegn Brighton en það er jafnframt síðasti leikurinn sem Salah gæti spilað áður en hann fer með egypska landsliðinu í Afríkukeppnina.

„Við sitjum hér kvöldið fyrir stóran leik gegn Inter en það eru bara 36 klukkustundir frá því við fengum á okkur jöfnunarmarkið gegn Leeds. Þú hlýtur að skilja að ég reyni að undirbúa liðið mitt sem best fyrir næsta leik. Öll einbeitingin er á leiknum á morgun. Við ákváðum að taka hann ekki með en eftir morgundaginn tökum við stöðuna. Ég trúi því alltaf að leikmaður eigi afturkvæmt,“ sagði Slot er hann var spurður hvort Salah myndi spila gegn Brighton.

Slot fékk svo spurningu um hvort Salah muni spila aftur fyrir Liverpool.

„Ég hef ekki hugmynd. Ég get ekki svarað þessari spurningu núna,“ sagði Slot.

Leikur Inter og Liverpool hefst klukkan 20:00 annað kvöld og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.


Tengdar fréttir

Salah ekki með Liverpool til Ítalíu

Mohamed Salah ferðast ekki með Liverpool yfir til Ítalíu og verður ekki í leikmannahópi liðsins gegn Inter Milan í Meistaradeildinni Evrópu annað kvöld.

Búist við að Salah verði hent úr hóp

Búist er við því að Mohamed Salah ferðist ekki með Liverpool yfir til Ítalíu í dag og verði ekki í hóp á morgun er liðið mætir Inter Milan í Meistaradeildinni. 

Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“

Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, sem varð síðar óvinsæll hjá félaginu þegar hann samdi við Manchester United, hefur lagt orð í belg varðandi framgang Mohamed Salah eftir leik Liverpool við Leeds í gær.

Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“

Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur í Match of the Day á breska ríkisútvarpinu, BBC, gagnrýndi framkomu Mohamed Salah eftir leik liðsins við Leeds í gær. Salah rauf þögnina við fjölmiðla eftir þriðja leik hans á varamannabekk liðsins í röð þar sem hann útilokaði ekki brottför frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×