Mbappé með í kvöld og gæti bjargað starfi Alonso Sindri Sverrisson skrifar 10. desember 2025 15:02 Kylian Mbappé þarf að deila sviðinu með Erling Haaland í kvöld. Getty/Angel Martinez Þrátt fyrir sögur af fingurbroti og eymslum í hné þá er Kylian Mbappé í leikmannahópi Real Madrid sem mætir Manchester City í ansi mikilvægum stórleik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld.
Leikurinn gæti ráðið miklu um framtíð Xabi Alonso sem sagður er afar valtur í sessi hjá Real eftir aðeins einn sigur í síðustu fimm leikjum í spænsku deildinni. Guillem Balague, sérfræðingur um spænska boltann, hefur til að mynda sagt að möguleikar Alonso á að halda starfinu séu litlir og að tap í kvöld gæti orðið síðasti naglinn í kistuna. Aðeins hálft ár er síðan Alonso tók við Real, eftir afar farsælan tíma með Leverkusen í Þýskalandi. Eigi Alonso að halda starfinu gæti það breytt miklu að Mbappé verði klár í slaginn í kvöld. Hann hefur skorað samtals 25 mörk í spænsku deildinni og Meistaradeildinni á þessari leiktíð en skoraði þó ekki frekar en félagar hans í 2-0 tapinu á heimavelli gegn Celta Vigo á sunnudaginn. Mbappé var ekki með á æfingu Real í gær og sögðu spænskir miðlar þá frá því að hann hefði brákað fingur. Hann ku einnig vera að glíma við hnémeiðsli en nú er orðið ljóst að hann verður að minnsta kosti í leikmannahópi Real í kvöld. Leikurinn á Bernabéu hefst klukkan 20 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Sýn Sport 2 auk þess sem allir leikir kvöldsins verða að vanda í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira