Veislan hafin og Littler feginn eftir fyrsta leik Sindri Sverrisson skrifar 11. desember 2025 21:54 Luke Littler fær nú góða pásu áður en byrjað verður að spila örar nær jólum. Getty/Adam Davy Hinn 18 ára gamli Luke Littler, ríkjandi heimsmeistari í pílukasti, átti ekki í vandræðum með að landa sigri í sínum fyrsta leik á HM í Alexandra Palace í kvöld, á fyrsta keppnisdegi HM.
Littler mætti Litháanum Darius Labanauskas í fyrsta leik og þó að Labanauskas megi vera stoltur af sinni frammistöðu þá átti hann ekki séns í Littler sem tapaði ekki setti í kvöld. Frammistaða Littler var nánast fullkomin og hann getur nú tekið því rólega þar til hann stígur aftur á stokk í 64 manna úrslitum sem fram fara 20.-23. desember. Hann skoraði að meðaltali 101,54 stig, náði sjö sinnum í 180 og var frábær í útskotunum, með 64,3% hittni í ytri hringinn. „Þetta var alls ekki auðvelt. Tölfræðin sýnir það kannski ekki en ég er ánægður með sigurinn,“ sagði Littler við Sky Sports eftir sigurinn. „Taugarnar segja alltaf til sín en þegar maður er mættur á sviðið, búinn að vinna einn legg og eitt sett, þá kemst maður í gírinn. Það eina sem skiptir máli er að vinna settin,“ sagði Littler og bætti við: „Ég held að allir á þessu móti vilji bara ná að vinna í fyrstu umferðinni, hún er klárlega erfiðust. Ég er mættur í þriðja sinn, fyrsti leikur búinn og nú fæ ég tíu daga hvíld.“
Pílukast Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti ÍBV - Þróttur | Geta lyft sér upp í þriðja sæti Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld ÍR semur við bandarískan bakvörð Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Sjá meira