Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 12. desember 2025 23:56 Salvador og Luísa Sobral unnu Eurovision árið 2017 með laginu Amar Pelos Dois. Sá fyrrnefndi sakar portúgalska ríkisútvarpið um heigulshátt og hvetur það til að draga Portúgal úr Eurovision 2026 sökum þátttöku Ísraels. EPA Sautján keppendur í Festival da Canção, undankeppni Portúgal fyrir söngkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, segjast ætla að sniðganga Eurovision vinni þeir innlendu undankeppnina.
Keppendurnir greina frá þessu í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum, þar sem þeir mótmæla ákvörðun EBU um að leyfa Ísraelum að taka þátt í Eurovision þrátt fyrir framgöngu ríkisins gegn Palestínumönnum. Sem fyrr segir eru þeir sautján talsins og koma fram í ellefu af sextán atriðum sem taka þátt í undankeppninni. Ítreka þátttöku þrátt fyrir yfirlýsinguna Í vikunni bættist Ísland í hóp ríkja sem taka ekki þátt í söngkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Vínarborg á næsta ári. Írland, Spánn, Holland og Slóvenía hafa sömuleiðis dregið sig úr keppni. Í gær bárust þau tíðindi að svissneska söngkvárið Nemo, sem vann Eurovision í fyrra, hygðist skila bikarnum vegna þátttöku Ísraels í keppninni. „Eftir að Rússlandi var meinuð þátttaka árið 2022 af pólitískum ástæðum kom okkur á óvart að sama afstaða sé ekki tekin gagnvart Ísrael, sem fremur þjóðarmorð á Gasa samkvæmt Sameinuðu þjóðunum,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu portúgölsku listamannanna. RTP, portúgalska ríkisútvarpið, hefur brugðist við yfirlýsingunni með því að ítreka þátttöku Portúgal í Eurovision 2026. Salvador Sobral, fyrsti og eini sigurvegari Portúgala í Eurovision, gagnrýnir afstöðu RTP í Instagram-færslu, þar sem hann sakar miðilinn um pólitískan heigulshátt. Þá hafa 22 þúsund Portúgalar skrifað undir ákall til RTP um að hætta við þátttöku í Eurovision á næsta ári, að því er kemur fram í umfjöllum Euronews.
Eurovision Portúgal Eurovision 2026 Mest lesið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Tónlist Fleiri fréttir Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira