Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. desember 2025 19:12 Hafsteinn Númason vonar að skýrslan verði til þess að brugðist verði við. Faðir sem missti þrjú börn í snjóflóðinu í Súðavík árið 1995 segir nýja skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var í dag ekki til neins ef ekki verði brugðist við henni. Hann segir ekki dag líða þar sem hann hugsi ekki til dagsins örlagaríka í janúar þetta ár, stjórnvöld hafi með því að neita að horfast í augu við ábyrgð látið eins og fráfall íbúa í Súðavík hafi ekki skipt neinu máli.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en rætt var við Hafstein Númason sem missti þrjú börn í snjóflóðinu þann 16. janúar 1995. Fjórtán fórust í flóðinu, þar af átta börn. Líkt og fram hefur komið var skýrsla nefndarinnar birt í dag en nefndin var skipuð fyrir rétt rúmu ári síðan. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að skýrsla um varnargarða, sem tilbúin var sumarið 1993 hafi ekki verið fylgt eftir. Þá kemur einnig fram hvernig hættumat snjóflóða hafi í raun orðið að pólitískum málum í sveitarstjórnum almennt og menn haft áhyggjur af skipulagsmálum og verðfalli fasteigna. Nefndarmaður rannsóknanefndar sagði tíðarandann hafa verið að gera lítið úr hættu og draga í efa hættulínu snjóflóða. Einnig segir að almannavarnarnefnd ríkisins hafi ekki fengið upplýsingar um snjóflóðahættu á ytra svæði bæjarins. Þá standa orð gegn orði um hvort þær upplýsingar hafi borist sveitarstjóra og lögreglustjóra. Ljóst er þó að ekki vöru öll hús á hættusvæði rýmd. Verði að vera uppgjör Í kvöldfréttum Sýnar í kvöld segir Hafsteinn að það litla sem hann hafi náð að skoða hingað til í skýrslu rannsóknarnefndarinnar lofi góðu. Íbúar hafi barist fyrir því í þrjátíu ár að skýrsla af þessu tagi verði unnin. „Ég veit eiginlega ekki hvað á að segja, maður er að vonast til að þetta verði uppgjör. Að það komi allt fram sem þarf að koma fram. Það sem við fórum fram á er að fá sannleikann fram eins og hann er. Stjórnvöld eru búin að móast við í þrjátíu ár,“ segir Hafsteinn sem segir ekki eðlilegt að þurfa að standa í stríði í svo langan tíma til að ná fram slíkri rannsókn. Rifjast þetta allt saman aftur upp þegar svona skýrsla kemur fram og þú sérð þessar myndir? Hvernig líður þér með það allt saman? „Maður dettur alveg inn í þetta, þetta er erfitt en málið er að það hefur varla liðið sá dagur í þessi þrjátíu ár að maður hefur ekki hugsað um þetta. Því að þetta hefur skipt mann máli. Með því að neita okkur um rannsókn og fá hlutina fram eins og þeir voru, til þess að taka á málinu, þá eru stjórnvöld að segja að það skipti aldrei neinu máli hvort þau lifðu eða dóu þetta fólk sem var þarna. Eins og hann sagði áðan, formaður nefndarinnar, að það sé búið að taka þennan tíma....og það hefur verið reynt að tala þetta niður.“ Hafi aldrei viðurkennt mistök Hafsteinn segir þá staðreynd sem komi fram í skýrslunni um að hættumatskort hafi ekki sýnt öll hús í byggðinni ekki slá hann meira nú heldur en það hafi gert í upphafi. „Því maður var búinn að sjá þetta strax í upphafi. Og það var svo táknrænt á sínum tíma þegar Ómar Ragnarsson kom fram í fréttatíma, hann dró fram línu og sagði: Hérna er ég á hættusvæði og svo stóð hann í hinn fótinn. Nú er ég ekki á hættusvæði,“ segir Hafsteinn. Hann bendir á að nefnt sé í skýrslunni að fallið hafi snjóflóð á hús á Súðavík 1983. Þar hafi það farið á miðjan vegg og íbúi neglt fyrir glugga af hræðslu. Vonastu til þess að það verði brugðist við þessari skýrslu, að það verði eitthvað framhald á þessu? „Hún er ekki til neins skýrslan ef það er ekki tekið á því og unnið út frá því,“ segir Hafsteinn sem bendir á að formaður nefndarinnar Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari hafi bent á í kvöldfréttum Sýnar að snjóflóðavarnakerfið hafi verið stokkað upp í kjölfar atburðanna í Súðavík. „Hvað segir það okkur? Það segir okkur hreint út að allt kerfið var ekki í lagi. Þeir stokkuðu upp en það eru aldrei viðurkennd mistök.“
Snjóflóðin í Súðavík 1995 Súðavíkurhreppur Alþingi Almannavarnir Snjóflóð á Íslandi Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira