Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. desember 2025 10:27 Sjór gekk yfir þjóðveginn. Vegagerðin Fyrri flóð hafa veikt sjávarkambinn í Vík í Mýrdal með þeim afleiðingum að sjór gengur lengra inn á land en áður, jafnvel í veðrum sem teljast ekki slæm. Vegagerðin segir að þetta hafi verið fyrirséð þróun.
Mikill sjór gekk á land við Vík í Mýrdal í vikunni. Flóð myndaðist austan við þorpið og sunnan við þjóðveginn. Austan við Vík gekk sjór yfir þjóðveginn. Sveitarstjóri Mýrdalshrepps lýsir miklum áhyggjum af innviðum á svæðinu, sérstaklega í ljósi þess að á aðfangadag er spáð slæmu veðri og hárri sjávarstöðu. „Þarna eru auðvitað innviðir. Þjóðvegur og innviðir sveitarfélagsins sem eru í bráðri hættu. Staðan er sú að þarna er viðvarandi landrof og fjaran er alltaf að færast nær og nær. Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur ef ekki verður brugðist við,“ sagði Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri í gær. Talsvert af flóðvatni safnaðist upp austan við byggðina.Vegagerðin Vegagerðin segir í tilkynningu að sveitarstjórinn fari með rangt mál þegar hann segi að Vegagerðinni beri að verja land sem hefur verið skipulagt. Hið rétta sé að land þar sem til eru mannvirki sem séu í forgangi. Vegagerðin hafi undanfarið unnið að greiningu í samstarfi við VSÓ verkfræðistofu þar sem unnin verði skilgreining á varnarlínu framan við þjóðveginn. Í kjölfar þeirrar greiningar verði komin mynd á þörf fyrir líklega flóðvörn á kafla framan við þjóðveginn til að koma í veg fyrir að sjór nái að honum. „Í framhaldi af þessari vinnur verður lagt til að reist verði flóðvörn á kafla framan við þjóðveginn til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Vegagerðin segist lengi hafa varað við því að strandlengjan við Vík sé mjög óstöðug og að varhugavert sé að byggja austan við varnarlínu sem dregin var árið 1994. Vegagerðin segir að þó svo að lægð sé spáð á aðfangadag sé gert ráð fyrir vægara veðri en olli flóðum fyrr í vikunni. Engu að síður megi gera ráð fyrir að sambærilegt veður og gekk yfir nýverið geti komið síðar í vetur. Annarri lægð er spáð á aðfangadag.Vegagerðin Til skamms tíma verður skoðað að rjúfa Kötlugarðinn, varnargarðinn austan við Vík, til að hleypa vatni til austurs þannig að stærra svæði taki við flóðvatni. Jafnframt mun Vegagerðin leggja til við sveitarfélagið að byggð verði tímabundin flóðvörn í vegstæði reiðvegar sem fyrir er. Til skoðunar er sömuleiðis að hækka þann veg nú þegar til að veita tímabundna vörn.
Mýrdalshreppur Vegagerð Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira