„Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. desember 2025 10:42 Jóhannes minnist dóttur sinnar með bréfum til hennar tvisvar á ári. Á afmælisdaginn og dánardaginn. Jóhannes Kr. Kristjánsson fjölmiðlamaður segir að það nísti hjarta hans að sjá fréttir um hve mörg ungmenni deyi á ári hverju vegna ofneyslu. Sigrún Mjöll dóttir hans lést af slíkum völdum fyrir rúmum fimmtán árum. Jóhannes safnar minningum um dóttur sína fyrir hlaðvarpsþátt sem hann vinnur að.
Sigrún Mjöll hefði orðið 33 ára í dag en hún var aðeins sautján ára þegar hún lést. Jóhannes, sem hefur komið víða við á löngum fjölmiðlaferli, skrifar bréf til látinnar dóttur sinnar og birtir á Facebook. „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi og stundum oft á dag. Það er svo ótal margt sem minnir mig á þig og það eru langoftast góðar minningar sem ylja manni og ég brosi. Stundum koma stundir þar sem minning kallar fram sorgina og einstaka sinnum græt ég þegar ég hugsa til þín elsku stelpan mín. Það er enginn ofsafenginn grátur heldur tár sem koma af minnsta tilefni við aðstæður þar sem minningin um þig verður svo sterk og falleg. Og mér líður betur eftir,“ segir Jóhannes. Umkringt sig góðu fólki Hann segir sorgina verða bærilegri með hverju árinu, sem þýði þó alls ekki að hann hugsi minna til hennar. „Ég held einfaldlega að ég læri meira á lífið á hverjum degi, þroskist aðeins meira með hverju árinu og kannski það mikilvægasta - í lífinu mínu er svo mikil fegurð sem byggir á fólkinu mínu og fólkinu sem ég umgengst hvað mest. Ég hef nefnilega lært að umkringja mig fólki sem gefur af sér til baka því ég reyni að gefa sem mest af mér - sem að þú gerðir einmitt svo vel á þínum bestu stundum.“ Hann segir það nísta hjarta sitt að sjá fréttir af andlátum ungmenna vegna ofneyslu ár eftir ár. „Ég tek hverja slíka fregn inn á mig og stundum sendi ég aðstandendum þess sem deyr stutt skilaboð þar sem ég reyni að hughreysta því ég veit því miður hvað fjölskyldan sem stendur eftir er að ganga í gegnum. Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það.“ Vill segja sögu fleiri ungmenna Jóhannes hefur síðustu vikur unnið að hlaðvarpsþætti Á vettvangi um dóttur sína sem til stendur að birta á nýju ári. „Það hefur verið erfitt að vinna þáttinn en á sama tíma mjög gefandi því ég veit að hann mun hreyfa við fólki. Í þættinum kafa ég ofan í sjálfan mig og tala við fólk sem þekkti þig. Ég er líka byrjaður að hafa samband við ástvini ungs fólks sem hefur látist vegna ofneyslu frá árinu sem þú lést - 2010. Markmið mitt er að komast í samband við ástvini allra sem hafa látist frá 2010 sem voru yngri en 30 ára þegar þeir létust vegna ofneyslu. Ég ætla að biðja það fólk að hafa samband við mig í gegnum netfangið mitt; johanneskr@rme.is.“ Hann óskar Sissu sinni til hamingju með 33 ára afmælið. „Þegar ég skrifa þessa afmæliskveðju sé ég þig fyrir mér sem fallega unga konu, með börn, í draumastarfinu þínu og með ástríkan eiginmann þér við hlið. Segi þér betur frá því í þættinum á næsta ári.“
Fíkn Fjölmiðlar Mest lesið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Fleiri fréttir Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Sjá meira