Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Kjartan Kjartansson skrifar 23. desember 2025 11:49 World Class hefur rekið líkamsræktarstöð í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja frá því í sumar. Bjóða á út uppbyggingu og rekstur stöðvra á nýju ári eftir að fyrra útboð var ekki talið hafa uppfyllt lög og reglur. Vísir Vestmannaeyjabær þarf að bjóða út byggingu og rekstur heilsuræktarstöðvar aftur þar sem hann stóð ekki rétt að því þegar World Class hreppti hnossið fyrr á þessu ári. Þá er bærinn bótaskyldur gagnvart hópi sem sóttist eftir verkefninu.
Uppbygging og rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja var auglýst á vef Vestmannaeyjabæjar í mars, tveimur mánuðum eftir að bæjarráð samþykkti beiðni forstjóra World Class um viðræður um slíkan rekstur. Auk World Class sýndi hópur fólks með reynslu af rekstri líkamsræktarstöðva, þar á meðal Leifur Geir Hafsteinsson sem stofnaði fyrstu Crossfit-stöð landsins, fyrir hönd óstofnaðs einkahlutafélags áhuga á verkinu. Bærinn ákvað að ganga til viðræðna við World Class í apríl. Því vildi hinn hópurinn ekki una og kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála. Krafðist hann þess að samningsgerðin yrði stöðvuð á meðan skorið yrði úr málinu. World Class hefur rekið líkamsræktarstöð í íþróttamiðstöðinni í Eyjum frá því í júní á grundvelli bráðabirgðasamnings við bæinn. Lögðu ekki mat á virði samningsins fyrir útboð Kærunefndin komst að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að Vestmannaeyjabær hefði ekki fylgt reglum um útboð og boðið stöðina út sem sérleyfssamning. Ekki hefði verið lagt mat á verðmæti leyfisins áður en það var boðið út. Verðmætið hafi verið umfram fjárhæðarmörk sem kveðið sér á um í reglugerð um útboð sem þessi. Bjóða þarf út slíka samninga sem eru yfir rúmum 800 milljónum króna að verðmæti á EES-svæðinu. Felldi nefndin því úr gildi ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að velja tilboð World Class og gerði henni að bjóða heilsuræktarstöðina út aftur. Einnig viðurkenndi nefndin skaðabótaskyldu bæjarins gagnvart kærendunum vegna kostnaðar þeirra við þátttöku í útboðinu. Bærinn þarf einnig að greiða kærendunum milljón krónur í málskostnað. Niðurstaðan ákveðin Leifur Geir fagnar niðurstöðunni sem hann lýsir sem fullnaðarsigri. Hann og félagar hans hafi talið margt ámælisvert við útboðið og hvernig að því var staðið, þar á meðal upplýsingagjöf, mælikvarða sem voru notaðir og mat á tilboðum. Leifur Geir Hafsteinsson er einn fjögurra einstaklinga sem standa að óstofnuðu einkahlutafélagi og sækjast eftir að byggja upp og reka líksmaræktarstöð í EyjumVísir „Það er voðalega auðvelt að búa sér til þá mynd í huganum að menn hafi verið að leita eftir einni ákveðinni niðurstöðu sem var ekki að fá okkur til liðs við sig. Sem okkur auðvitað sárnaði því við lögðum mikla vinnu í umsóknina okkar og við vitum að við erum að bjóða upp á mun glæsilegri líkamsrækt en það sem gengur og gerist í bransanum,“ segir Leifur Geir við Vísi. Hann segir að hópurinn ætli að áfram að sækjast eftir því að fá að byggja og reka heilsuræktarstöðina þegar bærinn býður hana út aftur. Löngu fallið frá upphaflegu leiðinni Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, segir að bærinn hafi fallið frá upphaflegri leið við að bjóða út heilsuræktarstöðina fyrir mörgum mánuðum. Ákveðið hefði verið að fara í formlegt sérleyfisútboð í stað þess að eyða mörgum mánuðum í að bíða eftir úrskurði kærunefndarinnar. Hún vísaði á Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar. Hann segir að ákvörðunin um að falla frá fyrra ferli hafi verið tekin um leið og það var kært. Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.Vísir/JóiK Uppbygging og rekstur stöðvarinnar verði nú boðin út sem sérleyfissamningur á EES-svæðinu. „Miðað við hvernig vinnan hefur gengið vonast ég til að geta boðið þetta út núna í janúar,“ segir Brynjar. Líkamsræktarstöðvar hafa verið reknar undir merkjum Hressó í Vestmannaeyjum, þar á meðal í íþróttamiðstöðinni. Aðstandendur þess félags tilkynntu fyrr á þessu ári að þeir hygðust hætta rekstrinum. Brynjar segir að bærinn hefði leitað til tilboðsaðila um að taka við rekstrinum tímabundið. Ákveðið var að gera bráðabirgðasamning við World Class sem var tilbúið að hefja rekstur fyrr en hinn hópurinn. Með samningnum leigir World Class tímabundið um 160 fermetra aðstöðu í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja til að reika heilsuræktarstöð. Samningurinn gilti til 1. nóvember upphaflega en World Class hafði einhliða heimild til þess að framlengja hann til áramóta.
Vestmannaeyjar Stjórnsýsla Líkamsræktarstöðvar Rekstur hins opinbera Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira