Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eiður Þór Árnason og Lovísa Arnardóttir skrifa 2. janúar 2026 08:25 Teitur kom að bílveltunni í gærmorgun og segir það heppni að ekki hafi farið verr. Samsett Teitur Þorkelsson leiðsögumaður kom að bílveltu í gær, nýársmorgun, við Kambana á Hellisheiði og furðar sig á því að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum. Í bílnum voru ferðamenn sem voru fluttir til Hveragerðis til aðhlynningar og voru ekki alvarlega slasaðir að sögn Teits. Hann segir þau þó hafa verið í miklu áfalli.
Teitur kom að fjölskyldunni um klukkan 10.30 í gærmorgun en hann var sjálfur á leið að sækja ferðamenn sem hann var að fara með í ferð. Hann segir bíl fjölskyldunnar hafa runnið út af veginum og oltið. Hann hafi stöðvað og boðið þeim að koma inn í bíl til sín því það hafi verið svo kalt. Þar biðu þau eftir viðbragðsaðilum sem komu á vettvang stuttu síðar. „Þau voru smá lemstruð,“ segir hann og bætir við að oft komi áverkar betur í ljós síðar. Hann segir að á þessum tíma hafi verið glerhálka á heiðinni. „Maður sá kristalla á veginum. Þau hafa farið niður kambana og runnið út af,“ segir Teitur. Á meðan hann aðstoðaði fjölskylduna hafi nokkrir aðrir bílar runnið til sem voru á niðurleið í Kömbunum. „Ég var hræddur um að þau myndu renna á okkur. Þetta er oft svona á morgnana og á kvöldin, þá í hitabreytingum verður skyndilega glerhált,“ segir Teitur. Teitur segir nokkra bíla hafa runnið til og hann hafi óttast að þeir myndu renna á þau.Aðsend Skiptar skoðanir á nagladekkjum Hann segir þetta auðvitað hluta af íslenska vetrinum. Hann vinni sjálfur við það að aka allan ársins hring og sé alvanur. „Það eru skiptar skoðanir á nagladekkjum en ég hélt að allir bílaleigubílar væru á nagladekkjum á veturna,“ segir Teitur og að reynslan hafi kennt honum að það skipti máli. Það skipti samt miklu máli að aka varlega en það hjálpi klárlega að vera á nagladekkjum. Hann segir það ekki óalgenga sjón að sjá bíla sem hafi verið stöðvaðir utan vegar um vetur en það sé heldur alvarlegra þegar þeir eru farnir að velta. Þá geti gler farið að brotna og fólk slasast alvarlega. „En þetta fór betur en á horfðist,“ segir Teitur að lokum.
Bílar Bílaleigur Ferðaþjónusta Hveragerði Nagladekk Umferðaröryggi Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira