Óvíst hvort hægt verði að endurheimta jarðneskar leifar Kjartans Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. janúar 2026 16:44 Kjartan Sævar Óttarsson ferðaðist frá Svíþjóð og í gegnum Pólland áleiðis til Úkraínu þar sem hann hugðist leggja hönd á plóg í varnarstríði Úkraínu gegn innrás Rússa. Facebook Ekki hefur tekist að endurheimta lík íslensks karlmanns sem féll á vígvellinum í Úkraínu og óvíst er hvort hægt verði yfir höfuð að endurheimta jarðneskar leifar hans. Fjölskylda mannsins nýtur aðstoðar borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna andláts mannsins sem hét Kjartan Sævar Óttarsson og var 51 árs.
Þetta kemur fram í skriflegu svari frá fjölskyldunni til Vísis. Kjartan var búsettur í Svíþjóð en gekk nýverið til liðs við úkraínska herinn og fékk fjölskylda hans staðfest á laugardaginn að hann væri látinn. Í fyrstu höfðu borist óstaðfestar fregnir af andláti hans í gegnum samfélagsmiðla frá 30.desember. Sjá einnig: Íslenskur maður lést í Úkraínu „Ekki hefur verið hægt að endurheimta líkið af vígvellinum og alls óvíst hvort það verði einhverntíman hægt. Það verður tíminn að leiða í ljós. Þrátt fyrir það höfum við fengið staðfestingu á að Kjartan sé svo sannarlega látinn,“ segir í skriflegu svari frá bróður Kjartans fyrir hönd fjölskyldunnar til Vísis. „Borgaraþjónustan er að aðstoða okkur við að fá tengilið í Úkraínu svo hægt verði að ganga frá ýmsum málum sem eru nokkuð hefðbundin þegar fólk lætur lífið í öðrum löndum eins og að fá persónulega muni, dánarvottorð og þess háttar,“ segir ennfremur í svarinu en fjölskyldan biður um frið til að meðtaka fréttirnar af andlátinu og hyggst ekki veita viðtöl að svo stöddu.
Íslendingar erlendis Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira