Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Kjartan Kjartansson skrifar 9. janúar 2026 14:52 Brottfarir fólks frá Keflavíkurflugvelli er helsti mælikvarðinn á fjölda ferðamanna sem kemur til Íslands. Tölur þaðan sýna einnig að Íslendingar ferðuðust sem aldrei fyrr árið 2025. Vísir/Vilhelm Brottfarir Íslendinga frá Keflavíkurflugvelli hafa aldrei mælst fleiri en í fyrra. Erlendum ferðamönnum fækkaði um 0,4 prósent á milli ára en fjöldinn hefur svo gott sem staðið í stað undanfarin þrjú ár.
Alls fóru um 2,25 milljónir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli árið 2025 samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Það voru átta þúsund færri brottfarir en árið 2024. Fjöldi brottfara er sá mælikvarði sem er helst notaður til þess að meta fjölda erlendra ferðamanna sem kemur til landsins. Mesti ferðamannastraumurinn var í ágúst en þá fóru um 311 þúsund manns frá Keflavíkurflugvelli, um þrjátíu þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2024. Brottförum fjölgaði á sex mánaða tímabili sem náði frá vori fram á haust en þeim fækkaði fyrstu og síðustu þrjá mánuði ársins. Rúmlega helmingur frá fjórum ríkjum Bandaríkjamenn voru fjölmennasti hópurinn sem sótti Íslands heim í fyrra. Þeir voru 654 þúsund talsins og 29 prósent af heildinni. Þeim fjölgaði um 33 þúsund á milli ára. Bretar voru næstfjölmennastir, um 233 þúsund manns og 10,3 prósent af heildinni. Þeim fækkaði um 33 þúsund frá 2024. Þar á eftir komu Þjóðverjar (6,6 prósent), Kínverjar (5,5 prósent). Saman voru Bandaríkjamenn, Bretar, Þjóðverjar og Kínverjar 51,4 prósent allra þeirra sem ferðuðust frá Keflavíkurflugvelli í fyrra. Flestir ferðuðust í páskamánuðinum Svo virðist sem að Íslendingar hafi aldrei ferðast meira en í fyrra. Brottfarir þeirra frá Keflavík voru 709 þúsund sem var átján prósentum fleiri en árið 2024. Fyrra metár var 2018 en þá mældust brottfarir Íslendinga 668 þúsund. Mesti ferðamánuðurinn var apríl en þá ferðuðust 81 þúsund Íslendingar út fyrir landssteinana. Páskarnir voru í apríl í fyrra.
Ferðaþjónusta Fréttir af flugi Ferðalög Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira