Árituð landsliðstreyja á uppboði til styrktar Ljósinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2026 13:31 Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, með árituðu landsliðstreyjuna. ljósið Í gær fór treyja íslenska handboltalandsliðsins, árituð af öllum leikmönnum þess, á uppboð til styrktar Ljósinu.
Treyja handboltalandsliðsins er fyrsta íþróttatreyjan sem fer á uppboð á árinu 2026 en allur ágóði af sölu treyjanna rennur til Ljóssins. Orri Rafn Sigurðarson, sem stendur fyrir góðgerðarverkefninu Gleðjum saman, útvegaði Ljósinu treyjurnar sem fara á uppboðið til styrktar Ljósinu. „Gleðjum saman var hugmynd sem ég fékk þar sem mér fannst vanta fleiri jákvæðar hvetjandi fréttir í kringum íþróttir. Verkefnið byrjaði með 6-8 íþróttatreyjum frá nokkrum af atvinnumönnunum okkar í knattspyrnu og var gert til að skapa smá jákvæðni í kringum íþróttahreyfinguna og sýna samstöðu og sameingarkraft þeirra fyrir jólin. Gleðjum saman hefur hins vegar stækkað á ótrúlegum hraða og eru í dag skráðar sextíu treyjur hjá okkur. Sem er alveg frábært og ég er ótrúlega glaður með þær viðtökur sem verkefnið hefur fengið,“ segir Orri í samtali við Vísi. „Mér fannst einnig mikilvægt að nýta kraft íþróttanna til þess að styðja og styrkja við gott málefni og kom Ljósið strax upp í hugann. Því miður þekki ég af eigin raun, líkt og svo margir aðrir, einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein og/eða tapað þeirri baráttu. Ég setti mig því í samband við Ljósið fljótlega eftir fyrstu afhendingar í verkefninu og strax frá byrjun voru þau mjög jákvæð og spennt fyrir hugmyndinni. Við höfum svo þróað í góðu samstarfi herferð sem mun vera í gangi allt árið 2026 og verða fleiri en tíu treyjur sem fara til þeirra og allar tekjur sem koma af þeim renna óskert til Ljóssins.“ Uppboðið á treyju íslenska handboltalandsliðsins hófst á hádegi í gær og lýkur á miðvikudaginn í næstu viku, degi eftir síðasta leik Íslands í riðlakeppninni á EM. Fara má inn á uppboðssíðuna með því að smella hér. Íslenska liðið hefur leik á Evrópumótinu gegn Ítalíu á föstudaginn. Ísland etur kappi við Pólland á sunnudaginn og svo Ungverjaland á þriðjudaginn eftir viku.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira