Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Sindri Sverrisson skrifar 14. janúar 2026 11:02 Ola Lindgren segir að helsta spurningamerkið varðandi íslenska landsliðið sé jafnan markvarslan. Viktor Gísli Hallgrímsson mætir nú á EM sem leikmaður eins besta liðs heims, Barcelona. vísir/Vilhelm Ola Lindgren, fyrrverandi þjálfari og lykilleikmaður sænska landsliðsins í handbolta, hefur gríðarlega trú á íslenska landsliðinu fyrir komandi Evrópumót. „
Ég held að þetta verði ár Íslands,“ sagði Lindgren í handboltahlaðvarpinu Handbollspodden í Svíþjóð. Ísland hefur leik á EM á föstudaginn klukkan 17, með leik við Ítalíu, spilar við Pólland á sunnudaginn og svo Ungverjaland næsta þriðjudag. Tvö liðanna komast svo áfram í milliriðla. Veit ekki hversu oft maður hefur talað um þetta Riðill Íslands er spilaður í Kristianstad, þar sem Lindgren þjálfaði um árabil, en hann er í dag landsliðsþjálfari Finnlands. Lindgren veit allt um það hvað þarf til að vinna EM því sem leikmaður vann hann mótið fjórum sinnum, í kringum aldamótin, auk þess að vinna HM tvisvar og fjölda fleiri verðlauna með gullkynslóð Svía. Nú þegar sérfræðingar velta vöngum yfir því hvaða lið nái lengst á EM í ár er Lindgren sannfærður um að Ísland muni slá í gegn. „Ég veit ekki hversu oft maður hefur talað um það í aðdraganda stórmóts hversu mikill efniviður og hæfileikar eru í þessu liði. Ég held að þetta verði ár Íslands, að þeir geti farið virkilega langt og komist í undanúrslit,“ sagði Lindgren. Að flestra mati lenti Íslands í „þægilegri“ helmingi mótsins og sleppur við að mæta til dæmis Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi og Spáni á leiðinni í undanúrslit. Lið á borð við Ungverjaland, Svíþjóð, Króatíu og Slóveníu berjast við Ísland um tvö sæti í undanúrslitunum. Helsta óvissan um markvörsluna Lindgren tekur undir að sem fyrr þá séu hins vegar markmannsmálin mesta spurningamerkið varðandi Ísland. Eins og Ólafur Stefánsson og félagar í sérfræðingateymi RÚV hafa rætt um þá virðist langt í næsta markvörð, á eftir þeim Viktori Gísla Hallgrímssyni og hinum fertuga Björgvini Páli Gústavssyni. „Alltaf þegar við tölum um Ísland þá endum við á að tala um þetta. Þeir eru með Hallgrímsson en hvaða getustigi getur hann viðhaldið? Og hver er þá hinn kosturinn, er það Gústavsson? Já, þá er allt eins og það á að vera hjá Íslandi, haha,“ sagði Lindgren léttur.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira