Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2026 14:30 Marc Guehi og Oliver Glasner eru báðir á förum frá Crystal Palace, knattspyrnustjórinn í sumar en fyrirliðinn á næstu dögum. Getty/Sebastian Frej Oliver Glasner knattspyrnustjóri Crystal Palace hefur nú gefið það út að hann verður ekki áfram með Lundúnaliðið.
Glasner staðfesti ekki aðeins það á blaðamannafundi heldur einnig að stjórnunarmiðvörðurinn Marc Guehi væri á förum í janúar. Þessi 51 árs gamli Austurríkismaður segir að þetta sé ekkert tengt því ákvörðunina um að vera ekki áfram hjá Palace tók hann í október. Glasner segir að hann hafi sagt eigandum Steve Parish að hann væri að hætta vegna þess að hann „vildi nýja áskorun“ og að það hefði ekkert að gera með niðurstöðu sumargluggans eða brotthvarf Marc Guehi. Hann staðfestir að hann hafi ekki rætt við neitt annað félag og að hann muni gera allt sem í hans valdi stendur til að vinna annan bikar fyrir Selhurst Park á þessu tímabili. Palace varð enskur bikarmeistari undir hans stjórn á síðustu leiktíð. Glasner var spurður út í núverandi stöðu Marc Guehi: „Nýjustu fréttir eru að samningurinn við Marc er á lokastigi. Við getum ekki staðfest það en það er ekki frágengið. Niðurstaðan er sú að Marc spilar ekki með okkur á morgun,“ sagði Oliver Glasner en Guehi er að ganga til liðs við Manchester City. „Þegar leikmenn vilja fara verður af samningi. Svo virðist sem það hafi gerst núna,“ sagði Glasner. „Allir vildu að Marc [Guehi] yrði hér að eilífu. Ég ræddi við hann, auðvitað, en það fer ekki lengra. Marc sýndi það í sumarglugganum og allt haustið að hann var hundrað prósent skuldbundinn liðinu og Crystal Palace,“ sagði Glasner. „Ég óska honum alls hins besta á ferli sínum. Hann er enn á byrjunarreit á sínum frábæra ferli. Hann er stórkostlegur náungi,“ sagði Glasner.
Enski boltinn Crystal Palace FC Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sjá meira