Leiðtogar á reynslu: „Prófsteinninn verður þegar vesenið byrjar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. janúar 2026 23:04 Ómar Ingi í leiknum gegn Ítalíu Einar Jónsson og Rúnar Kárason ræddu stórsigur Íslands gegn Ítalíu í hlaðvarpinu Besta sætið. Sérfræðingarnir voru ánægðir að sjá Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon stimpla sig vel inn í mótið, en bíða og vona eftir því að sjá svipaða frammistöðu gegn stærri liðum.
Einar og Rúnar sögðu lítið hægt að dæma íslenska liðið út frá þessum leik, enda var Ísland margfalt sterkari aðilinn og andstæðingurinn, Ítalía, spilaði mjög óhefðbundinn handbolta. „Við getum ekkert lesið í einhvern strúktúr eða eitthvað svoleiðis. Við sáum í raun og veru ekkert. Ungverjar eru ekki að fara að spila svona, Pólland er ekki að fara að spila svona, eða Króatía eða Svíþjóð. Það er enginn annar að spila svona handbolta“ sagði Einar Jónsson en ítrekaði mikilvægi þess að hafa unnið leikinn sannfærandi og sagði Ísland hafa gefið frá sér góða orku. Þeim þótti þó sérstaklega ánægjulegt og mikilvægt að sjá tvo bestu leikmenn liðsins, Ómar Inga Magnússon (6 mörk og 5 stoðsendingar) og Gísla Þorgeir Kristjánsson (7 mörk og 3 stoðsendingar), stimpla sig inn af krafti. „Fengu samt ekki allir smá hland fyrir hjartað þarna í byrjun leiks?“ sagði Rúnar Kárason þá og talaði um atvikið þegar Gísli Þorgeir féll harkalega til jarðar og hélt um öxlina. Einar Jónsson og Rúnar Kárason gerðu upp leik Íslands og Ítalíu í Besta sætinu með Aroni Guðmundssyni. „Þetta gerist í hverjum einasta leik með Magdeburg“ svaraði Einar en Gísli er einmitt þekktur fyrir að hnoðast mikið. „Já og þeir eru báðir bara on. Maður sér það“ sagði Rúnar þá um liðsfélagana hjá Magdeburg. „Tengingin milli þeirra var alveg frábær, manni hefur fundist það aðeins vanta en tilfinningin er að þetta sé alveg upp á 10,5 núna. Það er það sem okkur langar að sjá, því þetta eru kóngarnir okkar tveir. Við erum bara mjög heppin að eiga tvo bestu sóknarhandboltamenn í heimi.“ Þáttastjórnandinn Aron Guðmundsson vakti þá upp spurningu um hvort þeir tveir gætu tekið við leiðtogahlutverkinu sem Aron Pálmarsson skilur eftir sig. „Þessir gaurar leiða þetta bara með sinni frammistöðu en þetta var enginn prófsteinn á það hvort þeir geti leitt liðið. Prófsteinninn verður þegar vesenið byrjar, þegar við förum að spila á móti betri andstæðingum. Þó það sé gott að geta þetta á móti lakari andstæðingum, þá hefur það ekki verið vandamálið hingað til. Við höfum alltaf farið létt í gegnum lakari andstæðinga.“ Rúnar benti á að Ómar Ingi hefði verið manna háværastur í einu leikhléinu, þrátt fyrir að vera á bekknum á þeim tíma. „Já, ég er sammála því. Og það er kannski eitthvað, en ég segi það aftur: Ég verð að sjá þetta á móti Ungverjum eða Króötum eða einhvern tímann þegar við verðum í veseni.“ Besta sætið mun gera upp alla leiki Íslands á EM í hlaðvarpsformi með vel völdum sérfræðingum hverju sinni. Fyrsta þáttinn má finna í spilurunum hér að ofan en Besta sætið er aðgengilegt á Tal, Spotify og öllum helstu streymisveitum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira