Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Aron Guðmundsson skrifar 17. janúar 2026 21:15 Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands Getty/Daniel Karmann Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta þurftu að sætta sig við svekkjandi tap gegn Serbum á EM í handbolta í kvöld. Á ögurstundu gerði Alfreð mistök sem reyndust Þjóðverjum dýrkeypt. 30-27 urðu lokatölurnar, þriggja marka sigur Serbíu.
Fyrir leik vissu Þjóðverjarnir að sigur gegn Serbum í kvöld myndi tryggja þeim sæti í milliriðlum mótsins en á sama tíma úrslitaleik við Spánverja í lokaumferð riðilsins um toppsæti A-riðils og hvort liðið tæki með sér stig inn í milliðriðilinn. Leikur kvöldsins var hin mesta skemmtun og voru það Þjóðverjar sem leiddu hann lengi vel og voru til að mynda fjórum mörkum yfir í hálfleik 17-13. En eftir því sem líða tók á seinni hálfleikinn jókst pressa Serbanna og þegar komið var inn í lokamínútur leiksins stóð hann jafn. 25-25. Þegar um þrjár mínútur eftir lifðu leiks komust Serbarnir yfir 26-25. Juri Knorr kom boltanum í netið í næstu sókn fyrir Þjóðverja en Alfreð hafði beðið um leikhlé nokkrum sekúndubrotum áður en skot Knorr endaði í netinu og því gat markið ekki talist gilt. Stórt atvik því Serbum tókst í kjölfarið að bæta við marki og komast í tveggja marka forystu, 27-25. Þjóðverjarnir brenndu af vítakasti í næstu sókn , það hreinlega var ekkert að ganga upp hjá þeim á þessum tímapunkti leiksins. Lærisveinum Alfreðs tókst ekki að brúa bilið fyrir lok leiksins sem lauk með þriggja marka sigri Serba 30-27. Serbía og Þýskaland eru því jöfn með tvö stig að loknum tveimur umferðum og munu berjast um það í lokaumferðinni að komast áfram í milliriðla með Spánverjum. Þjóðverjar mæta Spánverjum í næstu umferð og þurfa sigur þar sem og treysta á að Serbar vinni ekki Austurríki til þess að komast áfram í milliriðla.
EM karla í handbolta 2026 Íslendingar erlendis Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira