Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 21:12 Ungverjaland og Ísland berjast um toppsæti F-riðils á EM í handbolta á þriðjudaginn kemur. Vísir/EPA Ísland og Ungverjaland munu mætast í úrslitaleik um það hvort liðið vinni F_riðilinn á EM í handbolta og taki með sér tvö stig í milliriðla. Þetta varð ljóst eftir sigur Ungverja á Ítölum í kvöld.
Ungverjar voru alltaf skrefinu á undan gegn Ítölum í kvöld og fór svo að á endanum sigldu þeir heim sex marka sigri, 32-26. Úrslitin hafa þá þýðingu að Ísland og Ungverjaland fara upp úr riðlinum í milliriðla en munu leika hreinan úrslitaleik sín á milli á þriðjudaginn kemur um toppsæti riðilsins. Það er heldur betur mikilvægt upp á framhaldið að gera að vinna þann leik því þar er möguleiki á að taka með sér tvö stig upp í milliriðil. Geri liðin jafntefli tekur toppliðið eitt stig með sér í milliriðla. Danir valsa áfram í hægagangi Á sama tíma áttu ríkjandi heims- og ólympíumeistarar Danmerkur ekki í teljandi vandræðum gegn Rúmeníu í B-riðli. Lokatölur þar urðu 39-24, fimmtán marka sigur Dana sem eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína, komnir áfram í milliriðil og mæta Portúgölum í síðustu umferð riðlakeppninnar í úrslitaleik um toppsæti riðilsins. D-riðill galopinn Þá tapaði Sviss gegn Slóveníu í D-riðli eftir að hafa leitt lengi vel. Lokatölurnar þar 38-35, þriggja marka sigur Slóveníu. Í sama riðli fyrr í kvöld lögðu Færeyingar landslið Svartfjallalands að velli en staðan í riðlinum er á þá leið núna að Slóvenar eru á toppi riðilsins með fjögur stig. Færeyjar eru í 2.sæti með þrjú stig og Sviss í því þriðja með eitt stig. Færeyjar mæta Slóveníu í lokaumferðinni og nægir jafntefli til að tryggja sig áfram í milliriðla en geta með sigri líka tryggt sér toppsæti riðilsins og tvö stig inn í milliriðla. Sviss mætir Svartfjallalandi í lokaumferðinni. Þessi riðill enn galopinn hvað baráttuna um sæti í milliriðlum varðar.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira