Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 19. janúar 2026 13:04 Lögreglumenn á Akureyri og víðar í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra sátu ekki auðum höndum um helgina. Vísir/Vilhelm Sex voru handteknir og hald lagt á umtalsvert magn af fíkniefnum, vopnum og fjármunum í lögregluaðgerðum á Akureyri um helgina. Ráðist var í aðgerðirnar í leit að vopni sem grunur er um að notað hafi verið til að beita hótunum, en ráðist var í húsleit og handtökur á fjórum stöðum og eru tveir enn í varðhaldi. Rannsókn málsins beinist þó einkum að fjórum einstaklingum, þar af tveir undir átján ára aldri, eru til rannsóknar. Þá voru fjórir handteknir í sama lögregluumdæmi í tengslum við innbrot og þjófnað. Þetta kemur fram í færslu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Facebook nú fyrir stundu þar sem greint er frá helstu verkefnum lögreglunnar í umdæminu nú um helgina. Eggvopn, skotvopn og skotfæri meðal annars haldlögð Helgin var annasöm að sögn lögreglu en auk hefðbundinna verkefna fór lögregla annars vegar í aðgerðir á Akureyri á laugardagskvöldið, þann 17. janúar, í þeim tilgangi að hafa uppi á skotvopni sem grunur var um að notað hafi verið við hótanir. „Húsleitir og handtökur fóru fram á fjórum stöðum. Sex einstaklingar voru handteknir og hald lagt á talsvert magn fíkniefna, fjármuni, eggvopn, skotvopn, skotfæri og meintan ávinning af brotastarfsemi. Rannsókn beinist nú að fjórum sakborningum en þar af eru tveir undir 18 ára aldri. Allir aðilar hafa verið látnir lausir og málið er í rannsókn,“ segir um aðra lögregluaðgerðina í færslunni. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur upplýsingar eða myndir á ritstjorn@visir.is. Fjórir handteknir og þýfi endurheimt í öðru máli Hitt málið sem varðar innbrot og þjófnað kom upp að morgni fimmtudags í síðustu viku þegar tilkynnt var um innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri. „Að morgni 15. janúar var tilkynnt um innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri. Þaðan hafði verið stolið sérhæfðum tölvubúnaði, lyklum af um tug ökutækja, vinnutækja og ýmsum verðmætum og hófst rannsókn þá þegar á málinu. Að kvöldi 16. janúar voru fjórir einstaklingar handteknir á Akureyri og einn á Raufarhöfn grunaðir um aðild að innbrotinu. Í framhaldi var farið í húsleitir á Raufarhöfn. Með aðgerðunum hafði lögregla uppi á þýfinu og er búið að koma því til skila til réttra eigenda. Rannsókn málsins er langt komin,“ segir um málið í tilkynningu lögreglu. Akureyri Lögreglumál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira
Þetta kemur fram í færslu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Facebook nú fyrir stundu þar sem greint er frá helstu verkefnum lögreglunnar í umdæminu nú um helgina. Eggvopn, skotvopn og skotfæri meðal annars haldlögð Helgin var annasöm að sögn lögreglu en auk hefðbundinna verkefna fór lögregla annars vegar í aðgerðir á Akureyri á laugardagskvöldið, þann 17. janúar, í þeim tilgangi að hafa uppi á skotvopni sem grunur var um að notað hafi verið við hótanir. „Húsleitir og handtökur fóru fram á fjórum stöðum. Sex einstaklingar voru handteknir og hald lagt á talsvert magn fíkniefna, fjármuni, eggvopn, skotvopn, skotfæri og meintan ávinning af brotastarfsemi. Rannsókn beinist nú að fjórum sakborningum en þar af eru tveir undir 18 ára aldri. Allir aðilar hafa verið látnir lausir og málið er í rannsókn,“ segir um aðra lögregluaðgerðina í færslunni. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur upplýsingar eða myndir á ritstjorn@visir.is. Fjórir handteknir og þýfi endurheimt í öðru máli Hitt málið sem varðar innbrot og þjófnað kom upp að morgni fimmtudags í síðustu viku þegar tilkynnt var um innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri. „Að morgni 15. janúar var tilkynnt um innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri. Þaðan hafði verið stolið sérhæfðum tölvubúnaði, lyklum af um tug ökutækja, vinnutækja og ýmsum verðmætum og hófst rannsókn þá þegar á málinu. Að kvöldi 16. janúar voru fjórir einstaklingar handteknir á Akureyri og einn á Raufarhöfn grunaðir um aðild að innbrotinu. Í framhaldi var farið í húsleitir á Raufarhöfn. Með aðgerðunum hafði lögregla uppi á þýfinu og er búið að koma því til skila til réttra eigenda. Rannsókn málsins er langt komin,“ segir um málið í tilkynningu lögreglu.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur upplýsingar eða myndir á ritstjorn@visir.is.
Akureyri Lögreglumál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira