Þrjú gull og sjö íslensk verðlaun á Norðurlandamótinu í MMA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2026 19:06 Logi Geirsson, Norðurlandameistari frá í fyrra, varði titilinn sinn í ár og fagnaði líka vel. Mjölnir Allir sex Íslendingarnir sem tóku þátt í Norðurlandamótinu í blönduðum bardagaíþróttum, MMA, komu heim með verðlaun. Alls komu Íslendingarnir heim með þrenn gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.
Íslensku keppendurnir koma allir úr Mjölni en það voru þeir Þorleifur Feykir Veigarsson (U23 ofurveltivigt), Steinar Bergsson (U23 millivigt), Viktor Gunnarsson (fjaðurvigt), Anton Hrafnhildarson (ofurveltivigt), Júlíus Bernsdorf (þungavigt) og síðast en ekki síst Logi Geirsson sem keppti í U23 ofurmillivigt og fékk jafnframt undanþágu til að keppa í léttþungavigt fullorðinna, þar sem hann keppti bæði upp fyrir sig í aldri og þyngd en Logi varð 21 árs núna í janúar. Gunnar Nelson yfirþjálfari Mjölnis fylgdi þeim út ásamt Jóni Viðari Arnþórssyni sem einnig var í horninu þeirra. Logi Geirsson þaggaði niður í höllinni með glæsilegum sigri á heimamanninum Gustaf Sandelin í léttþungavigt fullorðinna.Mjölnir Varði titilinn sinn Logi Geirsson, Norðurlandameistari frá í fyrra, varði titilinn sinn í ár og gerði gott betur þegar hann þaggaði niður í höllinni með glæsilegum sigri á heimamanninum Gustaf Sandelin í léttþungavigt fullorðinna. Íslendingurinn ungi vann báða úrslitabardagana í fyrstu lotu, þann fyrri (U23) gegn Norðmanninum Tsvetomir Stoyanov með tæknilegu rothöggi og hinn seinni með uppgjafarhengingartaki gegn heimamanninum Gustaf Sandelin eins og áður sagði. Steinar Bergsson varð Norðurlandameistari og fagnaði vel.Johan Rosén Photo Logi er því tvöfaldur Norðurlandameistari, bæði í U23 ofurmillivigt og í léttþungavigt fullorðinna. Það er glæsilegt afrek hjá Loga að taka gull í tveimur flokkum með þessum hætti. Gull eftir rothögg Steinar Bergsson fór beint í úrslit í U23 millivigtinni þar sem hann tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn í flokknum með sigri á heimamanninum Viggo Axelsson í fyrstu lotu með tæknilegu rothöggi! Frábær frammistaða og þriðja gullið til Íslendinga á þessu móti. Júlíus Bernsdorf varð að sætta sig við silfrið að þessu sinni.Mjölnir Júlíus Bernsdorf sigraði heimamanninn Mark Kurji á dómaraúrskurði í undanúrslitum þungavigtarinnar og mætti síðan öðrum Svía, Jiffa Kundo, í úrslitunum. Þar var Júlíus með nokkra yfirburði í fyrstu lotunni en lenti í hengingartaki í lok hennar eftir misheppnaða fellu og varð að játa sig sigraðan og gera sér silfurverðlaunin að góðu. Einn dómari taldi Viktor hafa unnið Viktor Gunnarsson mætti Norðmanninum Eric Nordin í undanúrslitum fjaðurvigtarinnar og sigraði með uppgjafarhengingartaki í þriðju lotu. Hann mætti svo Finnanum Walter Björkroth í úrslitunum. Bardaginn var gríðarlega jafn og endaði í klofnum dómaraúrskurði þar sem einn dómari taldi Viktor hafa unnið en tveir gáfu Finnanum sigur. Viktor fékk því silfrið en tæpara hefði það ekki geta verið og Íslendingurinn óheppinn að ná ekki í gullið þarna. Þorleifur Feykir Veigarsson sigraði heimamanninn Markus Uysal sannfærandi í undanúrslitum U23 ofurveltivigtarinnar á samróma dómaraúrskurði, en þess má geta að þetta var frumraun Þorleifs Feykis í MMA. Hann mætti síðan hinum finnska Arlex Blomqvist en þar varð Íslendingurinn að játa sig sigraðan á dómaraúrskurði sem var, líkt og í fyrri bardaganum, réttmætur dómur. Þriðja silfur Íslands í höfn. Allir Íslendingarnir á verðlaunapall Anton Hrafnhildarson mætti Svíanum Simon Junkergård í undanúrslitum ofurveltivigtarinnar. Anton sigraði sennilega fyrstu lotuna en lenti í hengingartaki þegar hann reyndi fellu í annarri lotu og varð að játa sig sigraðan. ann mætti síðan Norðmanninum Robin Kristiansen í baráttunni um þriðja sætið. Sá bardagi stóð allar þrjár loturnar og endaði í klofnum dómaraúrskurði sem nú féll okkar megin. Bronsverðlaun til Antons og þar með komust allir Íslendingarnir á verðlaunapall.
MMA Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Enski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Real Betis - Real Sociedad | Tímabilið hefst hjá Orra Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Sjá meira