Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. janúar 2026 13:15 Binni Glee er að norðan og sló í gegn í raunveruleikaþáttunum Æði. Hann segist fá fjölmörg skilaboð frá opinberlega gagnkynhneigðum mönnum sem eru jafnvel í sambandi. Vísir/Vilhelm Raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, birti á TikTok í gær skjáskot af samskiptum sínum við ónefndan knattspyrnumann. Viðkomandi segist þar eiga kærustu og sé ekki samkynhneigður en vilji samt hitta Binna aftur til að sofa hjá honum. „
Omg sá þetta trend og ég þurfti að vera með því þetta var galið og líka útaf umræðunni á beauty tips 😫,“ skrifar Binni við TikTok-færslu sem hann birti í gær. Fyrir skömmu birtust nafnlausar færslur á Beautytips þar sem konur ræddu samskipti kærasta sinna á Grindr við samkynhneigða menn. Færsla Brynjars inniheldur tvær myndir. Annars vegar má sjá hann í síðri bleikri úlpu í lyftu með textanum „I never wanted to be your...“ úr „Purple Rain“ eftir tónlistarmanninn Prins. Hins vegar má sjá skjáskot af Snapchat-samskiptum Binna við ónefndan mann þar sem textinn er botnaður með orðunum „weekend lover“. Myndirnar sem Binni birti á TikTok. Þar ræðir Binni við ónefndan knattspyrnumann sem hefur greinilega haldið framhjá kærustu sinni með Binna og er spenntur fyrir öðrum hittingi. „Sorry að ég er ekki búinn að senda neitt í nokkra daga sæti ❤️ er búinn að vera busy í fótbolanum og eittthvað[.] Ég hugsa samt alltaf um þig eftir æfingar,“ stendur í skilaboðum ónefnda mannsins. „Greinilega ekki??? þú ert svo erfiður,“ svarar Binni. „Ég þarf samt að vera honest,“ segir maðurinn þá. „Ugh hvað nú?“ spyr Binni. „Ég á kærustu og ætla ekki að eyðileggja það en þú er samt mjög næs og við getum alveg hist aftur og riðið? Ég er ekki gay[.] Þetta bara gerðist en ég fýla þig[.] Ég veit þetta lítur illa út en ég vil ekki særa neinn,“ skrifar knattspyrnumaðurinn. „Þú ert að djóka. OMFGGGG,G WTF,“ svarar Binni. Fjölmargir hafa síðan horft á myndbandið, rétt um 50 þúsund manns og fjöldi fólks skrifað ummæli við færsluna. Sjálfur sagðist Binni vona að viðkomandi myndi sjá færsluna. „Ef fólk vissi um skilaboðin sem ég er að fá“ Vísir heyrði í Brynjari sem sagði að skilaboðin væru ekki fölsuð heldur sönn og þau væru ekki einsdæmi. Fleiri en fimm fótboltamenn hefðu sent honum skilaboð og í öllum tilfellum hefðu þeir átt frumkvæðið að samskiptunum. Binni Glee starfar á Hrafnistu og er einn öflugasti áhrifavaldur landsins.Vísir/Hulda Margrét Binni sagðist sjálfur hafa séð sambærilegt trend á TikTok og ákveðið að vera með. Sjálfur taldi hann sig vera að fæla fótboltagaurana frá með færslunni en hún hefði haft þveröfug áhrif, fleiri fótboltagaurar hefðu addað honum á Snapchat í kjölfarið, sumir nafnlaust en aðrir ekki. „Margir sem halda að þetta sé djók eða ekki rétt, ef fólk bara vissi um skilaboðin sem ég er að fá, allir vinir minir vita af þessu, þetta er bara raunveruleikinn,“ sagði Binni í samtali við fréttastofu. Binni sagðist þó aldrei mundu afhjúpa nöfn fólks sem hann ætti í samskiptum við. „Ég myndi aldrei opinbera nöfn, það er ljótt. En það er samt líka ljótt hvað þeir eru að gera í samböndunum sínum,“ sagði hann.
Hinsegin Fótbolti Æði Samfélagsmiðlar Mest lesið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira