Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. janúar 2026 23:02 Brosmildur Ýmir Örn Gíslason faðmar hér félaga sína eftir sætan sigur í kvöld. vísir/epa Ísland er komið í milliriðil EM með tvö stig eftir 24-23 sigur á Ungverjum í Kristianstad í kvöld. Ótrúlegur leikur og skrípaleikur svo sannarlega á köflum.
Þetta er eitt slakasta ungverska lið sem ég hef séð lengi. Er íslenska liðið var að gera sig líklegt til þess að stinga þá af í fyrri hálfleik þá tóku hörmulegir makedónskir dómarar yfir leikinn og hleyptu Ungverjum aftur inn. Ótrúlegt að maður þurfi að horfa upp á svona hrottalega lélega dómgæslu á stórmóti árið 2026. Jafnt í hálfleik, 14-14. Liðið missir Elvar Örn í meiðsli undir lok fyrri hálfleiks og Ýmir fær svo afar umdeilt rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks. Alvöru áföll. Sem betur fer var Einar Þorsteinn orðinn heill heilsu og í hópnum. Það var ekki að sjá að drengurinn hefði verið fárveikur síðustu daga því hann var stórkostlegur í vörninni. Hann og Elliði stigu upp í fjarveru Elvars og Ýmis og bundu saman stórkostlega vörn Íslands í seinni hálfleik. Þvílík innkoma hjá Einari en meiðsli Elvars er lögreglumál. Vonandi er hann ekki illa haldinn. Fyrir aftan vörnina var svo Viktor Gísli í heimsklassaformi. Þegar sóknarleikurinn var í tómu tjóni hjá strákunum hélt Viktor þeim á floti. Með Viktor Gísla í svona formi er liðinu allir vegir færir. Strákarnir voru nefnilega að gera sjálfum sér erfitt fyrir með agalausum sóknarleik. Er á reyndi steig Gísli Þorgeir upp og dró vagninn yfir línuna. Lygilegur leikmaður sem heldur áfram að heilla. Leiðtogi. Ómar Ingi mataði menn eins og Magic Johnson í fyrri hálfleik en kom nánast ekki með neitt að borðinu sóknarlega í seinni hálfleik. Hann stóð vörnina gríðarlega vel en hann verður að fara að láta til sín taka í sókninni. Ég hef mikið velt fyrir mér andlegum styrk liðsins en það hefur brotnað síðustu ár þegar mest er undir. Ekki í kvöld. Þá stóð liðið í lappirnar á lokakaflanum. Leiddir af Gísla og Viktori. Mikið framfaraskref sem vonandi gefur góð fyrirheit í framhaldinu. Framhaldið lítur nefnilega vel út. Ísland fer með stig í milliriðilinn og það má svo sannarlega leyfa sér að dreyma. Draumurinn um undanúrslit lifir svo sannarlega og strákarnir eru búnir að koma sér í frábæra stöðu. Þessi sigur var ekki bara góður heldur var hann sætur. Mjög sætur. Ungverjagrýlan var loksins jörðuð og ekki verra að gera það á þeim stað þar sem Ungverjar ráku rýting í hjarta Íslands fyrir þremur árum. Megi þessi Grýla hvíla í friði. Næstu áratugina hið minnsta.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira