„Mér líður bara ömurlega“ Valur Páll Eiríksson skrifar 21. janúar 2026 12:23 Elvar Örn er á leið heim í aðgerð. sýn skjáskot Elvar Örn Jónsson var að vonum niðurlútur á hóteli íslenska landsliðsins þegar fjölmiðlamenn bar að garði í hádeginu.
Elvar Örn fór meiddur af velli í leik Íslands við Ungverjaland í gærkvöld. Eftir skoðun kemur í ljós að hann er með brotið bein í handarbaki og mun því ekki taka frekari þátt á mótinu. Henry Birgir Gunnarsson tók Elvar tali á liðshótelinu í Kristianstad en landsliðið færir sig yfir til Malmö fyrir milliriðilinn seinni partinn í dag. „Mér líður bara ömurlega. Ég verð að vera hreinskilinn með það,“ segir Elvar sem svaf ekki mikið í nótt. „Það var eitthvað minna. Það fóru margar hugsanir í gegnum kollinn og ég er bara ótrúlega svekktur.“ Aðspurður hvort hann hafi strax fundið á sér að meiðslin væru alvarleg þegar þau komu upp segir Elvar: „Maður heyrir brakið þegar þetta gerist. Þá grunaði mig að það væri eitthvað að. Ég reyndi að halda áfram en það var bara ekkert hægt,“ segir Elvar sem var tekinn í skoðun í hálfleik. „Það voru bein að hreyfast sem eiga ekki að hreyfast. Þeir voru 99 prósent vissir að þetta væri brotið. Eftir myndatöku fengum við það staðfest,“ Á meðan landsliðið fer yfir til Malmö heldur Elvar heim á leið þar sem hann mun gangast undir aðgerð vegna brotsins á morgun. „Ég er bara að fara heim núna í aðgerð en hef ekki mikið hugsað út í framhaldið. Við sjáum hvað gerist.“ Frekar verður rætt við Elvar í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira